Tískublogg
Í dag, kl. 8.07
Blogg eru dagbækur nútímans. Vefdagbækur sem allir geta lesið um áhugamál ykkar. Ein tegund blogga fjölga sér eins og kanínur um þessar mundir, en það eru tískublogg. Stílistar og fólk sem vinnur í tísku bloggar um starf sitt og tískuheiminn og við hin njótum góðs af. Það eru nokkur tískublogg sem ég skoða á hverjum degi og hér eru þrjú þeirra:
Fashion Chalet er hugarfóstur ungrar bandarískrar konu sem er tískustílisti. Hún fylgist með tískunni frá degi til dags og bloggar um það. Alltaf fylgja tískuljósmyndir af henni og öðrum. Mæli með þessari síðu, ef þú hefur áhuga á tísku

eigandi myndar / owner of picture - Fashion Chalet. http://www.fashionchalet.net/
Cupcakes and Cashmere er önnur bloggsíða sem ég fylgist líka með. Konan sú hefur tískublogg að atvinnu. Hún setur reglulega inn bloggfærslur um annaðhvort nýjustu tísku, vintage tísku eða fatnað sem hún rakst á og elskar. Mæli með þessari síðu. Hún setur reglulega inn færslur með skemmtilegum myndum. Bendir einnig á fatamerkin og búðirnar sem hún fær fötin.: http://cupcakesandcashmere.com/

Eigandi myndar /owner of picture: Cupcakes and cashmere
Eigum við eitthvað að ræða það hvað þessar töskur eru ÆÐIslegar!
Just love it!
http://cupcakesandcashmere.com/
——————-
Eitt sem fær mig til að fara aftur og aftur á þessar síður er persónulegi vinkillinn. Báðar nota þær myndir af sjálfum sér í tískufatnaði. Margar myndir og svo koma stundum skemmtileg matarbloggfærslur sem gerir bloggið persónulegra. Um daginn rakst ég síðan á tískubloggsíðu okkar eigin Svölu Björgvinsdóttur! Svala bloggar skemmtilega og setur margar myndir. Vinkillinn er frekar á tískuíkon Svölu sjálfrar, sem hún dáist að :

Mynd tekin af http://killakali.tumblr.com/
Svala Björgvins hefur mjög sérstakan og skemmtilegan stíl
Hressandi..
Jenis av Rana - öfgakristinn
Í gær, kl. 12.01
Mikið fjaðrafok í færeysku samfélagi um þessar mundir vegna ummæla færeyska þingmannsins, Jenis av Rana um komu okkar hæstvirta forsætisráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur og eiginkonu hennar til Færeyja nýlega. Rana mun hafa afþakkað kvöldmatarboð sem var haldið til heiðurs Jóhönnu. Bæði Íslenskir og danskir fjölmiðlar hafa fjallað um málið. Í íslenskum fjölmiðlum í gærkvöldi var rætt við nokkra færeyinga sem skömmuðust sín yfir ummælum þingmannsins. Ummælin þingmannsins munu vera nokkuð vandræðaleg fyrir færeyinga en Íslendingar eru eina þjóðin sem hafa boðið Færeyingum í opinbera heimsókn, sem þjóð og erum við Færeyingar nokkuð góðir vinir - mundi ég segja. Allavega er hægt að líta á Færeyinga sem nána vini og nágrannaþjóð. Þjóðirnar tvær eiga margt sameiginlegt.
Tveir aðrir færeyskir þingmenn hafa komið fram og sagst deila skoðunum Rana. Rana er leiðtogi miðflokksins í Færeyjum en þekktur fyrir að vera öfgamaður. Samkvæmt frétt á visir.is í dag, þar sem Rana er sagður öfgatrúarmaður á Biblíuna, vera á móti samkynhneigð og fóstureyðingum. Færeyski söngvarinn, Jógvan kom fram í dag og sagðist skammast sín yfir ummælum þingmannsins. Í útvarpsviðtali í færeysku útvarpi í gær vildi hann fullvissa landa sína að færeyingar væru ekki hataðir á Íslandi yfir þessu leiðindarmáli.
Raunin er sú að slíkar skoðanir eru í algjörlega skoðanir mjög fárra manna. Slíkir öfgaminnihlutahópar eru oft háværir og heyrst oft hærra í þeim en hinum. Málið er að nú á 21. öld eru slíkar skoðanir, eru skoðanir algjörs minnihlutahóps í okkar samfélagi. Þetta er leiðinlegt mál sem við verðum að leiða hjá okkur. Ljóst er að maðurinn hefur eyðilagt sinn pólítíska ferill, sem og færeyska miðflokksins.
Ennfremur er það ljóst að íslendingar eru einkar umburðarlyndir og fljótir að gleyma. Það er nú ekki stutt síðan að slíkt gæti hafa gerst í íslensku samfélagi. Við erum umburðarlynd þjóð - sem gæti kannski tengst þessu einstaklega skemmtilega “þetta reddast” viðhorfi okkar.
From the west side of town..
25. ágúst kl. 14.28
Flutningar eru afskaplega mikið vesen, ef satt skal segja. Auðvitað er hægt að líta á allt saman með jákvæðu hugarfar og segja við sjálfa sig að næsta íbúð eða hús sé betri en hitt, kannski ódýrara, betri staðsetning og þar fram eftir götunum. Í sannleika sagt, eru flutningar næstum alltaf óttalegir vandræðagemsar.
Fyrst þarf að útvega sér kassa. Sortera hluti hvort sem það fer í geymslu, upp á veggi, inní eldhús, í sorpið o.s.frv. Hefst þá pökkun. Kassar út um allt. Varla hægt að komast inn í svefnherbergi eða eldhús fyrir kössum og drasli. Svona í u.þ.b. viku. Svo þegar líður að eiginlegum flutningum, byrjar stressið. Koma öllu í kassa, fara með drasl í Sorpu, hafa áhyggjur af hvort maður fær lánaðan sendiferðabíl og grátbiðja vini og fjölskyldu um hjálp. Svo ég tali nú ekki um að vera búin að þrífa nýju íbúðina - því let’s face it. Sama hvað hún er greinilega hrein, þá fer maður alltaf yfir hana að einhverju leyti.
Á sjálfann flutningadaginn líður manni betur, því þá sér maður að allt fer vel. Fólk og bílar mættir. Allt fer í kassa og út úr húsi. Heppnir þeir sem búa á jarðhæð! Þó verð ég að segja að það er mjög góð líkamsrækt að flytja af þriðju hæð yfir á þriðju hæð.
Þeir sterku redda húsgögnum. Allt reddast.
Hinsvegar bullar í manni skömm þegar gamla íbúðin er tóm og þegar allir sjá hvað er skítugt. Úff, best að muna að gera almennilega jólahreingerningu. Best að drífa alla út áður en allir sjá allann skítinn…
Nýja íbúðin - nú full af kössum. Allt í óreglu.
Fyrsta nóttin yndisleg. Vissa um að allt fari vel…
köttur út í mýri…….
——–
Yndislegt að vera komin í nýja íbúð. Flest allt hjá okkur komið upp úr kassa - og við sofum mjög vel í vesturbænum. Tekur mig núna fimm mínutur að hjóla í vinnuna. Og við höfum FRÁBÆRT útsýni yfir hafið, út á Akranes og Akrafjallið.
Útvarpssagan
10. ágúst kl. 18.47
Útvarpssagan er gamalgróinn dagskrárliður á Rás 1. Hann hefur verið á dagskrá síðan árið 1936.
http://dagskra.ruv.is/utvarpssagan/greinar/utvarpssagan_gamalgroinn_dagskrarlidur_5097/
Miðvikudaginn þann 4 ágúst, kl.15.03, hófst lestur á bók Vilborgar Davíðsdóttur Eldfórnin. Höfundur les sjálfur. Ef farið er í gegnum forsíðu RÚV-Rás 1-Útvarpssagan neðst vinstra megin.
http://dagskra.ruv.is/ras1/4544642/2010/08/04/
Afskaplega þægilegt að hlusta á þetta seinni parts dags.
Vesturbæjarinn
5. ágúst kl. 13.44
Fædd og uppalin í Eyjafirði. Mun alltaf líta á mig sem Eyfirðing - Norðlending og sveitastúlku af húði og hári. Hugsunin um að flytja í vesturbæ Reykjavíkur er samt rosalega aðlaðandi. Sveitastúlkan er að flytja í aðlaðandi íbúð niður í sjó, þar sem er frábært útsýni yfir sjóinn og stuttur gangur í bæði skóla og vinnu.
Við sjóinn eru síðan indælis göngustígar, stutt í vesturbæjarsundlaug ásamt lágvöruverðsverslunum við Grandann og miðbæjinn.
Varðskipið Óðinn - The Coast Guard Vessel Óðinn
3. ágúst kl. 21.56
Varðskipið Óðinn er án efa stærsti safngripur Sjóminjasafnsins í Reykjavík. Hann liggur við safnbryggju safnsins ásamt gamla dráttarbátnum Magna sem er verið að gera upp svo hægt sé að sýna hann gestum og gangandi líkt og Óðinn. Á tveimur hæðum Sjóminjasafnsins er hægt að kynna sér sögu ,,fiskveiða og strandmenningu Íslendinga í aldanna rás. Hlutverk safnsins er að safna og miðla upplýsingum um minjar tengdar sjó og sjómennsku, einkum þeim sem gildi hafa fyrir sögu Reykjavíkur. Nú eru tveir aðalinngangar inn í safnið, Grandagarðsmegin og síðan hafnarmegin.”
(Heimild: www.sjominjasafn.is/syningar/)
Varðskipið Óðinn og dráttarbáturinn Magni við safnbryggjuna:
Á góðvirðisdögum má sjá endur á pollinum og fiska leika sér að stökkva í vatninu. Oft er mikið líf niður við höfn.
Gamla Gullborgin stendur einnig við safnið, bátur aflaklóarinnar Binna úr Gröf.
Skipið er á vegum Faxaflóahafna. Eiginlega þyrfti fara henda einhverja málningu á hann!
Sjóminjasafnið er opið alla daga í sumar milli 11 og 17. Varðskipið er opið gestum safnsins milli 12:30 og 16:30. Um helgar koma fyrrum áhafnameðlimir í heimsókn og geta áhugasamir því fengið einkaleiðsögn um skipið. Bryggjan Kaffihús býður síðan uppá indælis bökur, kökur, súpur og smurt brauð. Einnig er hægt að kaupa íslenska framleiðslu í safnbúðinni.
The Maritime museum is open every day this summer from 11 am to 17 pm. The Coast Guard vessel Óðinn is open to museum guests from 12:30 to 16:30. Former members of the Óðinn crew offers guests a privat tour on weekends. In the Café you can buy pies, cakes, soups and bread. Also one can buy icelandic made product at the museum shop.
(Á þessum síðustu og verstu, verður safnvörðurinn að nýta alla auglýsingamiðla;)
kveðjur, Alma Sigrún safnvörður á Sjóminjasafninu





