Stríðsmaðurinn

18. febrúar kl. 18.50

Nýkomin heim úr gæminu. Það var svo gott veður að ég ákvað að rölta bara niðureftir.  Í dag var tekið á því í hot yoga, en þar er salurinn einfaldlega hitaður upp, síðan er notað gufutæki til að “gufa” upp salinn.  Yogakennarinn var bandarísk, ung kona sem var með þennan fyndna bandaríska hreim. Ég átti í erfiðleikum að vera alvarleg fyrstu mínuturnar en náði að halda mér saman og fara í stellinguna sitjandi hund.  Síðan var eitthvað sem hét stríðsmaðurinn og þar eftir götunum.  Heitin á hverri yogastellingu er nú bara fyndinn en æfingarnar eru mjög góðar, til að liðka líkamann og verða liðugri og styrkjast. Svo svitnar maður heilmikið :D …. en lyktin á eftir hvern tíma - úff! Sérstaklega þegar er tekið vel á því í einn og hálfan tíma!



Rita ummæli