GÆMIÐ….

17. febrúar kl. 16.24

Svo virðist sem að World Class í Laugum sé aðalstaðurinn.. ég hætti barasta ekki að sjá “fræga” fólkið svitna á hlaupabrettunum. Vil leggja áherslu á gæsalappirnar í kringum fræga, því let’s face it -  er hægt að tala um frægt fólk þegar maður er hluti af 300.000 þúsund manna þjóð? Svo ef maður hugsar ekki um hvað við erum í raunini lítil þjóð, þá skiptir hinn venjulegi íslendingur sér ekki af “fræga” fólkinu, meira segja ef “fræga” fólkið sé í rauninni Frægt fólk. Íslendingar lappa niður götuna, sjá einhver frægan einstakling ganga framhjá þeim, uppgvöta að þetta var einhver söngvarinn í einhverju bandi útí heimi en halda svo áfram að ganga niður götuna.  Nema auðvitað þegar fræga fólkið sé í rauninni það snobbað að það haldi sig í í hnapp ásamt 9 lífvörðum og hinn venjulegi íslendingur verði einfaldlega að stoppa og athuga, því let’s face it, again, við erum afskaplega forvitin þjóð.

Talandi um þjóð. Umræða á rás 2 í morgun varðandi það að landsflótti hefur aldrei verið meiri í íslandssöguni.  Skil það vel að fólk vilji skapa sér nýtt líf, ný tækifæri fyrir komandi kynslóðir en mér er samt illa við að fólk tali um landið í neikvæðum skilningi, t.d. ,,að koma sér burt af þessu skeri” - hvað er það nú eiginlega? Það eru einstaklingarnir, fólkið, fyrrverandi ríkisstjórn, útrásin sem hefur skapað þetta ástand, ekki landið sjálft.  Sjálf held ég að sameiginlegar minningar þjóðarinnar um núverandi kreppu, muni skapast í framtíðinni og þjappa þjóðinni saman.  Þurfum bara komast í gegnum þetta.

Landsflóttarfólkið muni enn vera íslendingar, það hverfur ekkert. Enginn ætti að skammast sín fyrir það að vera íslendingur þrátt fyrir að við eigum nokkur slæm epli sem þarf að týna úr og henda. Við sjáum að, að á árinu 1960 kunnu Vestur-Íslendingar enn íslensku, vestur-íslendingar sem aldrei höfðu stigið fæti á fallega landið okkar, en litu samt á sig sem íslendinga. Vestur-íslendingar líta enn í dag á sig sem Vestur-Íslendinga og eru afskaplega stoltir af arfleifð sinni. Vona að brottfluttir íslendingar muni einnig verða stoltir af sinni arfleifð.

Það þýðir ekkert annað en að vera jákvæður á ástandið.. annars er lífið svo leiðinlegt..



Rita ummæli