Freistingar á hverju strái

3. febrúar kl. 22.48

Jæja, baráttan við freistingarnar halda áfram.. sem og baráttan við heilsuleysi og aukakílóin. Þetta orð er samt hræðilegt. Aukakíló. Pff, ástæða þess að við vinkonurnar erum byrjaðar í ræktinni er meira til að bæta almennt heilsuna, frekar en að reyna missa einhver aukakíló. Markmiðið er að hreyfa sig sem oftast, og ég stíg sko ekki á vigtina - vigtin blekkir.

 

Fórum í hot-yoga í morgun og það var nú magnað þar sem salurinn er hitaður upp, alveg extra mikið og svo eru gerðar sérstakar yoga æfingar. Skemmtilegur tími þar sem maður náði að svitna heilmikið.  Í byrjun tímans var einhver kona að spjalla við mann, þegar jógakennarinn var byrjaður og bað alla að hætta að spjalla og setjast niður – það gerði hún tvisvar.  Málglaða konan loksins hætti að æfa á sér málbeinin og settist niður, en ekki áður en að hún bað jógakennarann að tala hærra því hún heyrði ekki! Já halló, útaf því að þú varst að tala. Sæll, hvað sumir eru stubid.

 

Frábær æfing í morgun, þrátt fyrir einhverja málglaðar ljóskur. 

Gott að ég fór í æfingu í morgun, því freistingarnar freistuðu mín seinni partinn. Pitsa og pepsi í matinn.  Ég kenni heimavinnuni um – erfitt að vera dugleg á mörgum stöðum í einu, svo það var skólinn sem fór í fyrsta sæti og heilsan í annað.

 

Og svo er bara að fara í ræktina á morgun líka til að ná pitsuni af sér…hehe..



Rita ummæli