Fyrsti í átaki

1. febrúar kl. 12.47

Í heilanum brjótast um ótal hugsanir. Maginn á mér sendir iðulega boð til heilans um að hann vilji næringarefni, heilinn hugsar sig um og vill eitthvað flott að borða. Skynsemin tekur inní og ég fæ mér gróft brauð með smá grænu og túnfiskssalati, banana og kristal plús. Maginn minn vill hinsvegar ekki svona hollustu, vill frekar stórann juicy hambó með frönskum á milli, bernaise og stórt glas af gosi. Hmm.. hugsar heilinn… og niðurstaðan er Nei. Febrúar er nefnilega runninn upp og það þýðir átak.

Febrúar mánuður er góður mánuður fyrir eitt, gott og hresst átak. Svolítill tími er liðinn frá hátíðum þar sem maður át eins og svín og hugsaði eins og enginn væri morgundagurinn og kílóin færu bara seinna. Jæja, núna er seinna. Febrúar þýðir líka að það er u.þ.b. 3-4 mánuðir í sumar og eins gott að taka á því ef maður ætlar að vera sætur í sumarkjólnum.

Sumarkjólinn hangir á herðartré inní skáp, blá og rauðköflóttur, vintage skyrtu kjóll sem er afskaplega fallegur og sumarlegur. Það eru verðlaunin fyrir átakið. Eins gott og maður standi sig. Ja, við sjáum til eftir 3 mánuði…



Rita ummæli