4. janúar 2010

4. janúar kl. 12.55

Er það bara ég eða er skrítið að sé komið árið 2010? Nýr áratugur, nýtt ár og ný ævintýri. Margt áhugavert mun gerast á árinu. Helst er ég að vonast eftir því að heyra umtalsvert minna af 7 stafa orðinu sem byrjar á I og endar á E sem ég er komin með grænar bólur af ógeði. Viðbjóður!  En stærsta ævintýrið verður án efa síðasta misserið í HÍ, því núna er ég byrjuð á BA ritgerð og þá er ekki aftur snúið. Að vísu stefni ég á master en það er í Kennó og sama hvað hver segir um að það er núna sami skólinn, þá er það barasta ekki rétt, þrátt fyrir sömu stjórnendur á efstu stigum.

Sit á borðinu mínu á Héraðskjalasafninu á Akureyri, já á  mínu borði. Tel rétt að kalla það, það því alltaf þegar ég kem hingað, sit ég á sama stað, við sama borð og enginn nema starfsmenn á hæðinni. Sem er auðvitað mjög skrítið að það eru engir aðrir gestir því það er bara stuð hérna og aldeilis frábært útsýni! Verð fyrir norðan fram að skólabyrjun í næstu viku og bý á Hótel Mömmu sem er algjör lúxus.

Gleðilegt ár, by the way! Hátíðirnar voru æðislegar og áramótaheitið metnaðarfullt. Stefnt er að, að klára ullarpeysuna mína brúnu á þessu ári. Já, haldiði að ég geti það? … Það eru nú ekki langt í verkslok því það er komin greinilegur bolur fram að ermum og önnur erminn komin uppá prjónana og er nú hálf. SPurning um að flýta huguðum verkslokum í að reyna klára í þessari viku?… mmmm kannski of metnaðarfullt.. en jæja.. skulum segja á þessu misseri. ….hehe…

jæja… stuðið bíður



Rita ummæli