Gleðileg jól!

21. desember 2009

Brátt koma blessuð jólin, Alma fer að hlakka til. Allir fá þá eitthvað fallegt, í það minnsta kerti og spil. :)

Vonandi eigiði þið öll gleðileg jól og við sjáumst kát og hress eftir hátíðirnar:)…. Vænti þess að þið borðið öll á ykkur gat, slakið hressilega á og hlakka til að sjá norðlendingana mína eftir jólin;)…..

jólaknús og jólakveðja

geðveikin búin..

17. desember 2009

17.desember og öll prófageðveikin búin. Loksins. Þetta var sko of löng prófatörn! Nú er það bara afslöppun=)

3 próf og endalaust af verkefnum að baki og eitt próf í sjónlínu. Stritið er ekki búið fyrr en feita konan syngur kl.12 á miðvikudag.  Þá kannski næ ég vitinu mínu aftur….