Heitt rjúkandi súkkulaði fyrir kalda vetrarmorgna..
29. nóvember 2009
Eitt er ómissandi á köldum vetrarmorgnum sem þessum: heitt súkkulaði. Leitaði hátt og lágt í eldhússkápunum, ekki var til neitt Swiss Miss sem hefur bjargað köldum, höndum í mörgum, köldum útilegum. Nesquick, en hvergi fannst það í neinum skápum. Hvað gera bændur þá? Þá er aðeins eitt til í stöðunni! Alvöru súkkulaði! Enda geisar vetrarhríð úti, og kaldar, litlar tær öskra á eitthvað heitt í kroppinn. Og þar sem er spáð kulda og vetrarhríð á landinu næstu daga, þá mæli ég með þegar farið verður næst útí búð að það verður keypt Swiss Miss því ekki er hægt að vera sjóða sér alvöru súkkulaði í hvert skipti þegar manni langar í heitt súkkulaði. Verst að ég eigi ekki neina sykurpúða…
Tilvalið að fara skreyta, þar sem það er fyrsti í Aðventu í dag og á meðan það er drukkið heitt súkkulaði, kveikt á kertum og hent í sunnudagslummur þá endilega að setja upp seríur, laga til og fara í betri fötin.
Fyrsti í aðventu ber nú upp á 29. nóvember. Nú á að kveikja á fyrsta kertinu í aðventukransinum. Þessi aðventukrans er samkvæmt norður-evrópskri hefð, úr sígrænu greni og með fjórum kertum. Hvert og eitt kerti hefur heiti skv. kirkjunni en flestir sem halda þessari hefð til haga í íslensku samfélagi í dag, hugsa ekki um þann hluta aðventunnar heldur fremur að þann kærleik sem jólin færa okkur, syngja jólalög, kveikja á seríunum og vera saman á aðventunni.
Hálfnað verk þá hafið er..
27. nóvember 2009
Nú heimaprófið hálfnað er
þá hálfur jólabjór í mig fer
og í háttinn ég ykkur kveð!
—
til lukku kann ég við ykkur að segja,
þegar slíkur jólasnjór af himnum fellur.
Til lukku eða á ég um það að þegja?
því við köldum jólasnjó við suma hrellur
en samt ég segji: Til lukku!
Tvöfaldur Windsor
26. nóvember 2009

Myndin að ofan er fengin af afar gagnlegri vefsíðu (www.tie-knots.org) þar sem er ítarlega farið í hvernig á að binda bæði bindishnúta og slaufur. Vonandi kemur þetta að notum, fyrir einhvern sem vill æfa sig fyrir hátíðirnar. Hef aldrei bundið bindishnút, en fannst þetta afar fróðlegt, og get nú með sanni sagt, að ég get bundið tvöfaldan Windsor og get því loksins gengið með bindi.
Undarlegir atburðir að gerast!!!
23. nóvember 2009
Ár hvert hverfur stór hluti landsmanna. Merkilegt er að það virðist engin taka eftir því. Þessi dularfulli atburður gerist tvisvar á ári! Til þess að komast í botn á þessu dularfulla máli hef ég verið “under cover” eins og kanarnir segja það, undanfarin tvö ár og 3 mánuði. Loks hef ég komist að leyndarmálinu og samsærinu stóra: Fólk um allt land, hættir að tala við fjölskyldu sína, sést aðeins við morgunverðarborðið og þegar kaffi er hellt uppá, hverfa djúpt inn í iðrum skólans og LÆRA!
Ég veit, þetta er stórmerkileg uppgvötun sem ég hef nú ákveðið að deila með ykkur! Að hugsa sér! Nemar að læra!! Merkilegt, virkilega merkilegt!!! Nú er þessi tími að nálgast á ný, og ég hef enn ákveðið að hætta andlegri heilsu minni og taka þátt í þessum svokallað ,,Lærdómi” og ,,prófum”.
óskið mér velfarnaðar!
,,… Hypjaðu þig nú!…”
19. nóvember 2009
Þessi orð sagði ég við einn óprúttinn náungi síðastliðna helgi, þegar sá hinn sami var gripinn glóðvolgur við að reyna ræna úr vinnuni. Hann var upptekinn við vinnu sína þegar ég kom að honum, svo ég ræskti mig, vildi ekki bregða honum of mikið og sagði svo ,,Viltu ekki hypja þig út?!”. Þjófurinn leit bara á mig, furðulostinn og því sagði ég enn hærra ,,HYPJAÐU ÞIG!” Hann byrjaði að rölta rólega af stað, mér fannst hann fara frekar rólega svo ég höstaði á hann, svona.. af stað. Áður en hann gekk út, gerði hann tilraun að búðarkassanum en ég sagði frekar hátt við hann ,,Svona, HYPJAÐU þig nú, strax - ég hringi á lögregluna!!”. Hann fór loksins út og þá hringdi ég á lögregluna, en sem urðu frekar hissa í símann þegar var tilkynnt um að ég hafði hent þjófi út og hann væri hérna á röltinu að bænum en sögðust koma af vörmu spori. Sem þeir gerðu og keyrðu þarna um í leit að sökudólgnum.
Lærdómurinn af þessari sögu er sá að ef þú kemur að þjófi, vera rótandi í dótinu þínu - það fyrsta sem þú átt að gera er að hringja á lögregluna, þjófar eru ekki alltaf rólegir eins og þessi var. Hringja sem allra fyrst á 112 sem eru nú oftast afar fljótir á staðinn.
Á konum jafnt sem körlum!!
16. nóvember 2009
Breið belti eru út – mjó belti inn! JEI=)… ætla samt ekki að losa mig við flotta svarta, breiða beltið mitt – það passar við allt! En ætla sannarlega að bæta einu mjóu flottu við skápinn=)=)

Hattar og húfur eru að verða nauðsynlegir í vetrarveðrunum - og einn svona fer vel á kvenmannshöfðum, jafn sem karlmannshöfuð:)… Ekkert jafnast á við flottann hatt!
Flott flott flott! Er svoldið á eftir í þessum málum en vesti urðu vinsæl aftur í sumar en held að þessi tíska sé komin til að vera!!!

belti, hattar og vesti - fara aldrei úr tísku - sem betur fer!!=)=)





