ég fer á fætur kl.8…
31. ágúst 2009
Fætur fyrir átta og byrjuð að lesa fyrir skólann á fyrsta skóladeginum! Nýtt met en varla skrítið þar sem maður er nú að hefja sitt þriðja ár og nú eykst pressan á mann um helming. Fyrir utan það verð ég í einum Mastersáfanga sem heitir ‘Fátækt fólk’ og er mjög spennandi - fer yfir tímabilið frá 1850 til dagsins í dag og tekur fyrir m.a. fátæka íslendinga og hrunið 2008!
Berjamóin er að baki, afköstin voru einir 10 lítrar - og fékk sko “Sko þig” frá Göggu yfirberjamóara. Vel að verki staðið finnst manni bara. Fórum uppí afdali Borgarfjarðar og það voru sko blá berjalönd þar, úffúff..
jæja, ætlaði sko að vera lesa núna..
Nú er það berjamót, Gagga mín:D
28. ágúst 2009
Á þessum árstíma er ekki laust við það að visst eirðarleysi fangi mann og reyni að draga mann niður í djúpinn. Sumarvinnan að verða búin og svo stutt í skólann að manni verkjar, manni langar svo. Þá er ekki annað hægt að gera nema fara bara í berjamó:D:D. Held að það séu nú góðar líkur á að maður skelli sér í berjamó, sem hefur ekki getað gerst undanfarna daga sökum veðurs. Búin að vera rigning í nokkra daga. Nú loksins sést til sólar, engin rigningarský nálægt og um leið og ég er búin kl.5 þá skellum við okkur í berjamót, Gagga mín:D. Loksins…..
Jæja, skólinn byrjar svo á mánudag, mikið, mikið hlakkar mig til!:D….
…
24. ágúst 2009
Aðeins ein vika í skólann. Stundarskráin mín þetta haustið er stutt og laggóð eins og venjulega. Fjórum sinnum í viku, byrja einu sinni kl.8, lengst til 3. Alveg yndislegt. Svo einu sinni í viku breytist ég í barnapíu og passa litlu Lilju, fyrir vinkonu mína.
Ljúft líf.
Nöldurkjelling…
21. ágúst 2009
Á þessu síðustu og verstu tímum er mikið sparað. Allstaðar reynt að spara sem mest og litið í hvert horn samfélagsins sem er hægt að spara nokkra aura. Fór í sund í nýju laugina á Álftanesi um daginn, fín laug nema hvað risarennibrautin var lokuð sem var mjög leiðinlegt því það er skylda að fara í eina ferð í rennibrautina alltaf þegar heimsótt er ný laug. Einnig var þarna heldur skemmtilegur pottur/laug sem voru framkallaðar öldur, sem var mjög skemmtilegt. Greinilega ekkert sparað þarna, enda laugin mjög 2007. En einhverstaðar þurftu Álftnesingar að spara og hvað völdu þeir!?! Heita vatnið! Sturturnar voru ískaldar. Hræðilegt að fara í ískalda sturtu sérstaklega útaf því að það var frekar vindótt útí og frekar svalt og manni hlakkaði til að fara í heita sturtu, en nei.
Nýtti mér frídaginn minn í dag, og fór í sund í morgun. Ákvað í þetta sinn einhverja laug sem ég fer reglulega í og Laugardalslaug varð fyrir valinu. Fín laug, nema hvað þegar ég ætlaði að borga fyrir eina ferð í afgreiðslunni var sundlaugavörðurinn, sem var greinilega algjör kjelling og var að lesa yfir ungri stúlku sem vann þarna líka. Er ekki hægt að gera þetta einhverstaðar annarstaðar, já eða bara alls ekki?! Aldeilis skemmtilegt að koma í sund, þegar einhver kjelling er að nöldra í afgreiðslunni. Hún gæti til dæmis nöldrað bara á blogginu í staðinn, svona rétt eins og ég er að gera núna;)..hehe.. Jæja, ég skipi mér ekkert af þessu og hélt áfram í sund. Svo komst ég að Laugardalsmenn spari ekkert í heita vatninu, vatnið var heitt og gott:D - fá mikið hrós fyrir það. Gott að komast í heita sturtu enda 6°C stiga hiti úti!
Menningarnótt á morgun og fríhelgi, alveg æðislegt:D..
Náði að vippa fram úr erminni einu gallapilsi… enn eitt pilsið komið í hópinn. Velkomin í fataskápinn hennar Ölmu;). Þar eiga heima ýmislegar skemmtileg föt. Vintage föt, kjólar, pils og síðast en ekki síst heimasaumað af Bólstaðarhlíðar og Brekkutraðarhúsmæðrum;). Vandinn er þó að gallapilsið sem fyrir tveimur kvöldum var gallabuxur, voru einu buxurnar mínar. Það er bara hinn skemmtilegasti vandi. Hef þá yndislega góða afsökun fyrir að fá mér nýjar buxur…hehe.
…
Góð ferðahelgi að baki..
10. ágúst 2009
Enn ein frábær helgi að baki, í fallega Eyjafirðinum mínum. Brúðkaupsundirbúningur fyrir brúðkaup Álfheiðar og Jóns, brúðkaupið sjálft, grill, handverkshátíð og almennt gaman og slökun sem manni tókst að troða í 6 yndislega daga fyrir norðan.
Flaug síðastliðinn þriðjudag norður, og þar mætti manni sól og yndislegt veður ásamt fjölskyldunni og almennri slökun. Gott að ná að slaka á í nokkra daga fyrir norðan, eyða dögunum í prjóni, sjónvarps og tölvuglápi. Litum við á Handverkshátíðina, hún var góð eins og venjulega, það var ótrúlega mikið af fólki - alveg troðið en mjög fjölbreytt og flott dót.
Síðan var brúðkaupsundirbúningur, m.a. falin í að gera servéttuhringi, baka og skreyta. Brúðkaupið var síðan á laugardeginum, í mjög fallegu veðri í Listigarðinum. Brúðurinn var í mjög flottum kjól!:D Síðan var veislan um kvöldið, þar sem var borðaður góður matur að hætti glúntrukvenna og dansað fram á nótt. Fóturinn var sem betur fer orðin nógu góður svo ég þurfti ekkert að gefa eftir, fremur en aðrir;).. Fyrir utan dansinn var líka dagskrá, með leikjum og öðru. Einn leikurinn var mjög sniðugur, þá voru allir gestirnir látnir skrifa loforð sem þeir áttu að gera fyrir brúðhjónin - gat verið hvað sem er, miðinn síðan látinn inní blöðru, blaðran blásin upp og síðan safnað saman og brúðhjónin áttu að reyna sprengja eins margar og þau gátu. Þau náðu ansi mörgum miðum, loforðin sumhver mjög fyndin og skemmtileg.
Þó var mjög leiðinlegt, að ég hafi týnt steinunum í hringnum mínum í öllum látunum. Sá mikið eftir honum. En á enn umgjörðina, svo ég get einhverntímann að kaupa í hann.
Tvær þrjár vikur í skólann, alltof stutt og alltof langt. Maður nær eina helgi í ferðalög, kannski maður skellir sér eitthvað…





