Föstudagur

31. júlí 2009

Enn ein verslunnarmannahelgin og róleg helgi framundan í borginni, enda verður öll veðurblíðan hér fyrir sunnan. Verður bara ágætt, leiðinlegt að það sé uppselt á Innipúkann  - hefði viljað geta kíkt á það, ágæt tónlist í boði. 

Opið á safninu alla helgina frá 11-17, kökur, léttir málsverðir og kaffi á Safnakaffi. Endilega kíkið við….

Bar eitt stykki skrifborð upp þrjár hæði í gær, afleiðingin var sú að ég er að drepast í bakinu.. þá verður bara potturinn í kvöld, hitapoki og slökun..

Bækurnar á náttborðinu

28. júlí 2009

Mæli með tveimur bókum eftir Zhou WeiHui, kínverskan höfund sem hefur orðið vel þekkt í hinum vestræna heimi sem Wei Hui (borið fram WeiWei).  Hún hefur m.a. gefið út bækurnar Shanghai Baby(2000) og Marrying Buddha(2005).  Fyrri bókin var bönnuð í Kína en seinni var gefin út með vissum skilyrðum. Höfundurinn lýsir bókunum sem semi sjálfsævisögur, byggir aðalkarakter bókarinnar á sér að vissu leyti og síðan á ævi sinni en notar einnig persónur í kringum sig til að byggja karakterinn upp.  Bækurnar eru báðar frekar erótískar og mjög áhugaverðar.

Síðan er bók eftir annan kínverskan höfund Jung Chang, en það er sjálfsævi-og fjölskyldusaga hennar, móður hennar og ömmu hennar. Í gegnum sögu þessara kvenna fá lesendur að læra um Kína á 20.öld, um landið fyrir byltingu og stríð um miðja öldina, um gamla tímann og hinn nýja. Mjög áhugaverð, frekar löng bók um land með langa en áhugaverða sögu.

..

húsmóðursráð..

28. júlí 2009

Húsráð nr.1: Vantar skreytingu í íbúðina, húsið eða á pallinn. Auðvelt og ókeypis er að lappa í nálægan skóg, týna mosa, köngla og klippa tvær-þrjár litlar grenigreinar. Síðan töltiru heim, setur mosann neðst í vasa, köngla þar ofan á og síðan greinigreinar. Einnig er hægt að sleppa greinunum en könglarnir eru fínt skraut.  Tilvalið enda stutt í haustið;)

Húsráð nr.2: Ef þú tímir ekki kaffibollanum í kaffihúsinu og ert orðin leið á hinum venjulega svarta kaffi þá er tilvalið að hella uppá sterkt kaffi, hita mjólk og gera heimatilbúin latte eða mjólkurkaffi. Síðan er hægt að gera sviss mokka uppá gamla mátann með því að blanda sterku kaffi við kakó;)..

kv.Unga húsmóðirinn úr Bólstaðarhlíðinni…

Bræðslan 2009

27. júlí 2009

Um helgina var ferðinni heitið til Bakkagerðis í Borgarfirði eystri á Austurlandi.  Lítið sjávarpláss, út í afkima austfjarða.  Lögðum af stað á fimmtudagskvöldið og keyrðum áleiðis, stoppuðum í Kirkjubæjarklaustri og tjölduðum þar á einu af köldustu kvöldum sumarsins en hitastigið fór fyrir neðan frostmark! Enda var manni mjög kalt og því var sofið frekar lítið.

Eftir hressadi sund á Höfn í Hornafirði og hornafjarðarhamborgara þá var keyrt til Borgarfjarðar, en klukkutíma keyrsla er frá Egilsstöðum yfir til Borgarfjarðar. Eftir erfiða keyrslu yfir þrönga fjallvegi var komið í fallega grænan lítinn fjörð. Komum á föstudagskvöldið, og þegar var frekar mikið af fólki komið í þorpið.

Þegar á tjaldstæðið var komið tókum við afdrífaríka ákvörðun, ranga ákvörðun. Við ákváðum að gista á tjaldstæðinu sem allt unga fólkið var.  Vissulega á maður að gera það þegar framundan er mega djamm en ef fólk ætlar ekki að hafa sérstaklega hátt og fara sofa ekkert sérstaklega seint, þá kannski um 1-3 og vill sofa eftir það þá ef e.t.v. sniðugra að reyna planta sér á hinn hluta tjaldstæðisins, sem yrði þá fjölskyldu. Þ.a.s. þar sem er leyfilegt og það var enginn gæsla á Bakkagerðistjaldstæðinu fyrir utan að koma út og inn á tjaldstæðið og þá þurfti að hafa miða.

Já, við s.s völdum unga fólkið og föstudagsnóttina var spiluð hávær tónlist til 12. Ekki til miðnættis, nei heldur til tólf daginn eftir! Munar ekkert um hvað sumir endast lengi.  Síðan nóttina eftir var mikið um að unga fólkið var að láta sig detta á tjöld, stela grillum og almenn fylleríslæti, hávær tónlist komandi úr öllum áttum og almennt vesen. Og já, nú segja sumir en hvað með fjölskyldurnar sem gista á fjölskyldutjaldstæðinu. Heyrðu, það fara ekki allir foreldrarnir að sofa kl.10 með börnunum sínum, þau hafa bara lægra en unga fólkið.

Nú hljóma ég barasta eins og gömul gribba, en fyrirgefið mér. Þegar ég fer í útileigu langar mig að grilla góðann mat og sitja svo við ljós inní tjaldi að spjalla og drekka bjór eða irish og fara síðan að sofa um 3, taka daginn snemma daginn eftir og skoða mig um. Og gera það án þess að fólk sé að detta á tjaldið mitt, öskra og ganga um hálfnakið í svefnpoka, alveg útúrþví að leita að grilltöng.

Á laugardaginn fóru strákarnir á ganga á Dyrfjöll og ég eyddi deginum í Bakkagerði að skoða mig um, lesa og reyna sofa þ.s. að fólkið sem hafði vakið alla nóttina hafði loksins hægt um sig eftir hádegi. Tónleikarnir voru síðan um kvöldið í ryðgustu tónleikaskemma sem ég hef séð, ryðdallur sem er skrítið að hafa ekki verið rifinn.  Magni, Páll Óskar og Monika, B. Sig, Bróðir Svartúlfs og síðan en ekki síst Þursarnir. Þursarnir voru vissulega stærsta nafnið og langflottastir en var mjög hrifin af Bróðir Svartúlfs sem voru mjög góðir.

S.s. góð helgi, góð bræðsla - misgott tjaldstæði. Mínus helgarinnar - engin sundlaug í Bakkagerði.

Haustið…

23. júlí 2009

Búin að vinna í tvo mánuði og er byrjuð að sakna skólans.  Það verður mikið að gera þetta árið eins og alltaf. Einhvernveginn tekst mér að safna að mér verkefnum og slíku svo alltaf verður nóg að gera.  Verð í þremur og hálfum áfanga. Er að einn aftur því ég féll í vor í einum hálfum áfanga og langaði bara að taka hann aftur og gera þetta almennilega og reyna ná meðaleinkunni upp eins og allir stúdentar reyna í sífellu að gera.

Hinir þrír verða mjög áhugaverðir. Fyrst er það sumarið 1809 með Önnu Agnarsdóttur, síðan Kyn og kynímyndir með Erlu Huldu og síðan einn þjóðfræðiáfangi um þjóðsögur og ævintýri. Svo var ég búin að samþykkja að vera íslenskur tengiliður fyrir erlendann stúdent og kynna viðkomandi fyrir skólanum, og hjálpa fyrstu dagana. Ætti að vera skemmtilegt, og fínt tækifæri að æfa sig betur í enskunni.

Ætli maður reyni ekki samt enn og aftur að einbeita sér að námi..hehe.. reyni … ehehe.. nei í alvöru, þá er ég að fara byrja undirbúning fyrir BA svo það verður nóg að gera..

það er auðvelt að hugsa um komandi haust þegar er svo haustlegt veður!!:D:D

Une cervesa….

22. júlí 2009

Skátar eru sérstakir. Fékk 100 skáta í heimsókn á safnið gær. Þvílíkt og annað eins. Skátar eru fínir en skátar sem tala enga ensku, alls, alls, aaaaaallllssss enga ensku eru mjög sérstakir.

Þegar þjóðir reyna að vernda tungumál sitt með því að talsetja allt og útiloka önnur tungumál í sjónvarpi, blöðum og auglýsingum er verið að ganga of langt. Allavega í þessum hluta heimsins er enska tungumál sem flestir tala. Það er bara svo þægilegt að hverfa í enskuna þegar maður er út í löndum og franskan/danskan/sænskan/norskan manns þrýtur þegar lokið er við að segja Góðann daginn ég heiti Alma.

Vissulega á að vernda tungumál hvers lands fyrir sig en það má ekki ganga of langt og útiloka önnur svo þegar sólarglöðu spánverjarnir koma í heimsókn tala þeir bara spænsku og ekkert annað.

Vissulega er spænska að verða annað alþjóðlegt mál eins og enska þar sem margar þjóðir tala spænsku.  Verst að ég kann bara - Une cervesa, porba vor…. sem er eiginlega eina setningin í hverju máli fyrir sig sem maður þarf að kunna;)..hehe