Kjúlli á spjóti

19. júní 2009

Eitthvað löt við að blogga þessa dagana.. Enn skrítið, nógu duglegur er maður nú við feisið, twittera nóg og skrifa svo í dagbók.  Bloggið er bara eitthvað svo dautt, máske fer fyrir því líkt og er að fara fyrir geisladiskinum í dag.  Úrelt.  Kannski ekki alveg úrelt en fólk kaupir vissulega mun minna af þeim.  Nú er að bara netið, eða borgarbókasafnið í mínu tilviki.  Þar getur maður tekið diska bara út eins og bækur. Mjög þægilegt.  Hvað maður gerir svo við þá, er kannski ekki sniðugt að birta á almennum vettvangi, if you catch my drift;).

Er á fullu í veisluundirbúning. Búin með gjafir, pepperónírúllur og er núna að upptekin stinga kjúkling á hol með spjótum og elda þá yfir eldi. Þvílíkur barbaricism í bólstaðarhlíð!

Síðan verður farið og gert skipið klárt, þarf að raða borðum, stólum og skreyta:)… nóg að gera.

jæja, kjúklingurinn stingur sig ekki sjálfur á hol…

sunnudagur

14. júní 2009

Skruppum á vikingahátíðina áðan. Flottir gripir að venju.  Endaði á því að festa kaup á þrjár tölur, endar á hreindýrahornum sem ég ætla nota í ullarpeysu.  Keyptum okkur líka hálsmenið hvert. 

Sól og sumarylur í borginni þessa stundina, en þegar ég var að vinna í dag þá var hellirigning.   Vonandi verður gott veður næsta laugardag…

einhver leti í manni…