..
27. maí 2009
Jæja, þá er gamla tölvan komin í hillu og nýja tölvan situr stolt á skrifborðinu mínu. Hvít, létt og lítil en með stórt hjarta:D. Gleðin gæti ekki verið meiri. Nú er hægt að nördast að vild:D
Brjálað að gera í vinnuni. Sumaropnun um helgina, en þá opnum við Víkin kaffihús og nýjar sýningar. Síðan er búið að gera nýjan sal tilbúin, en það er Súlnasalurinn en þar verður staðsett Víkin Leikhús. Kaffihúsið er einnig í nýjum sal, Sjávarsalnum en í báðum sölunum er tilvalið að halda veislur:D..
Maður verður örugglega settur í málningavinnu í dag útí skipi, sökum góðs veðurs. Heiður himinn og sól. Það á hinsvegar að vera hellidemba á morgun.
jæja, best að fara gera sig til:)…
Sumarblíða
19. maí 2009
Í vísu um hrepparíg:
En alltaf reynast Eyfirðingar bestir
þótt um það helst af lítillæti þegi
(Heimild: Eyfirsk skemmtiljóð)
.. Hehe…. Er að glugga í bókina Eyfirsk skemmtiljóð í morgunsárið.
Byrjaði í vinnuni fyrir viku síðan. Búið að vera skemmtilegt að venju:). Í gær vorum við stelpurnar að gera nýjasta salinn tilbúinn, en það er fyrrum geymsla safnsins sem breytist í Súlnasalinn sem verður bæði leikhússalur, funda- og veislusalur. Sparsla, mála, pússa og sópa.. fjölbreytt starf safnvarðars. Svo er ekki verra að geta sólað sig í hádegishlénnu, í þessari sumarblíðu:)
Frábær tilfinning að vera búin í skólanum. Búið að vera svakalega mikið að gera þennan vetur, extra mikið af einingum og svo ritarastarf í nemendafélagi sagnfræðinema. Þriðja árið verður mun auðveldara, þrjú námskeið í haust og svo ritgerð og eitt námskeið næsta vor.
Mamma og pabbi komu í heimsókn síðustu helgi, og haldið var Eurvisiongrillpartý í bólstaðarhlíð. Mjög gaman:)
jæja, best að fara drífa sig í vinnuna:D…
ein ritgerð eftir.. JEI!
11. maí 2009
- Blessuð sértu sveitin mín er í word. Síðasta ritgerð misserisins. Jei. Ágæt ritgerð bara, komin í 10 bls.
Eurovision að skella á , wúppí:). Það lítur út fyrir Familýugrillpartý í Bólstaðarhlíð. Held með Noregi og Finnum. Finnska lagið er brilliant og norska mjög eurolegt. Jóhanna og partý standa sig auta vel!:D.. Finnst skýjadæmið samt svoldið væmið og unglingalegt.. missti mig alveg þegar þessi höfrungur birtist á skjánum fyrir aftan hana þegar sýnt var frá æfingu íslenska liðsins í moskvu. Jeminn!.. Það vantaði bara einhyrning þá var þetta fullkomið. Einhver í útvarpinu sagði að þetta væri svona goth legt og þeir sem væru mikið ævintýragaurar yrðu hrifnir. Ég veit bara ekkert hvað gaurinn er að meina!.. Maður, höfrungur!! Dísús. Held frekar að fimm ára stelpur verða hrifnar að þessu skýja, höfrunga acti. Lagið er samt flott og söngurinn frábær!
jæja.. best að halda áfram með ritgerðina..
Fimmtudagur
7. maí 2009
Jæja, þá eru prófin búin fyrir þetta misseri. Það gekk ágætlega í gær. Ekkert frábærlega, það voru allir á sama máli eftir próf ,, mér gekk svona lala, veit ekki”. Svo það er bara bíða eftir einkunum. Er nú þegar búin að fá tvær sjöur, á eftir að fá úr tveimur símatsnámskeiðum og úr einum prófnámskeiði.
Ein ritgerð eftir. Framættarverkefnið. Búin að skila hinni, fjölskyldur af nesinu sem endaði í 22 síðum. Er mjög spennt að fá úr henni, maður lagði þvílíkt í hana. Er núna að fara yfir þessa 28 einstaklinga og skrá niður barnafjölda og reyna fá einhverja mynd á þetta. Á síðan eftir að fara á þjóðskjalasafnið á morgun og fara í einhverjar kirkjubækur og athuga hvort það séu fleiri upplýsingar um liðið. Síðan verður farið í heimildavinnu um helgina en síðan byrja ég í vinnuni á mánudag en ætla skrifa ritgerðina í næstu viku eftir vinnu. Þetta er stutt ritgerð. Tekur ekki langan tíma.
Get ekki hugsað mér að fara eitthvað á bóksafn núna, stressið síðustu viku er búið að vera svo svakalegt að maður þarf aðeins að slaka á.
jæja… ætla halda áfram að slaka á..:D
..
5. maí 2009
próf. Enough said. Læra fram á nótt. Drekka voða mikið af orkudrykkjum og gosi, borða nammi og reyna með mesta móti að troða einhverju inní hausinn minn.
ritgerð, próf, ritgerð…
3. maí 2009
Er að leggja lokahönd á ritgerðina. Garðahverfi á Álftanesi, byggð og samfélag á 18.öld. fjölskyldur af nesinu. Fjölskyldusögu- og mannfjöldarannsókn. Hljómar bara eins og BA ritgerð, hehe. Blaðsíðutalið er um 22 bls., á örugglega eftir að hækka í 23-24 bls. Er að laga núna, Hörður prófarkalas í dag. Miðtitillinn á hugsanlega eftir að breytast, veit ekki. Fyrsti titillinn er sko yfirskrift hópverkefnis, restin er titill ritgerðar.
Próflestur er tekinn eftir að ég klára ritgerðina, skil eru nefnilega á morgun. Próf á miðvikudag. Mun anda léttar eftir það, því þá get ég drifið í síðustu ritgerðinni sem er rannsókn á minni eigin framætt, framætt er s.s. forfeðurnir. Mjög spennandi og skemmtileg! Ætla taka framætt pabba megin, langaafana Garðar og Finn, og langaömmurnar Kristrúnu og Steinunni, og foreldra þeirra og afar og ömmur. Lögð áhersla á fjölskyldumál, hjónabönd og barnafjölda á 19. öld. Sem passar vel við því þessi leggur var MJÖG frjósamur. Frjósemin skilaði sér í gegnum kynslóðirnar því pabbi á nú einu sinni 9 systkini!..hehe.. frjósemi í arf…hmmm..
Frábær laugardagur í gær. Við frændsystkinin komum Göggu aldeilis á óvart með kökukaffi. Ég get þó ekki tekið neinn credit af þessu, algjörlega hugmynd Álfheiðar, Mæju, Steinunnar og Stebba. Ég var bara með en gerði þó Mexíkóostabrauðrétt og lagði í púkkið;).
Ég hitti síðan Birgittu og Lilju vinkonur á Vegamótum í gær og við fengum okkur brunch. Ekki frásögu færandi nema hvað það var gaman að sjá þær, en þjónustan þar var HRÆÐILEG. Einu sinni mælti ég sko með þessum stað, en mæli alls ekki með honum núna. Þjónustan hefur farið hríðversnandi!!
jæja, best að halda áfram…





