Sunnudagur
26. apríl 2009
Er að hlusta á rás 2 á Villa naglbít. Alveg snilldar þáttur. Hann byrjar um hádegi á sunnudögum. Mjög skemmtilegur þáttur sem ég reyni ekki að missa af.
Er bara mjög sátt við kosningaúrslit:). VG stóð sig vel, mikil hækkun á fylgi frá seinustu kosningum:). Lítur út fyrir að vinstri stjórnin heldur velli. Vil sko sjá Jóhönnu aftur í forsætisráðherraembættinu. Mikil sigur hjá Samfyllkingu en þó er VG og Borgarahreyfingin greinilegir sigurvegarar í þessum kosningum. VG fær 14 þingmenn, 21,7%. Flott að sjá Borgarahreyfinguna með fjóra þingmenn en nú er bara að sjá hvað þeir gera næst. Næstu vikur verða áhugaverðar í íslenskum stjórnmálum.
Hérna er fjallað um kosningaúrslitin á BBC: http://news.bbc.co.uk/2/hi/europe/8017927.stm
og svo á Guardian: http://www.guardian.co.uk/world/2009/apr/26/iceland-election-sigurdardottir
Annars er helgin búin að vera mjög fín bara, laugardagurinn var tekin í mikilli þynnku þar sem því var fagnað ærlega á föstudagskvöldið, að ný stjórn í Fróða, nemendafélagi sagnfræðinema var að taka við. Og við í gömlu stjórninni fögnuðum því sko, að við vorum að stíga niður. Það var drukkið, dansað og sungið:). Ætli maður reyni ekki eitthvað við ritgerðina, sem er komin í 16 bls. en blaðsíðunum mun fjölga áður en ritgerðin verður skiluð inn. Er núna að skrifa um vinnufólk í Garðahverfi, svo ætla ég að reyna að rannsaka eitthvað barnafjöldann og svo aldurskiptingu í Garðahverfi svo ritgerðin er nú ekki búin enn. Stefni enn á 18 bls. en er farin að halda að það muni fara uppí 20 bls.
Þjáðist mikið af heimþrá í gær, þar sem fermingaveisla er hjá frænku minni í dag - en ég kemst ekki:(. Ætla reyna koma í heimsókn norður í maí eða júní, en það verður mikið að gera í maí. Sumaropnun á safninu er í lok maí, og við verðum á fullu að gera allt til og skipta um sýningar á safninu áður en sumarið kemur:).
jæja, best að halda áfram. Ætli maður teki það ekki samt rólega í dag.. einhver sunnudagur í manni.
Föstudagur
24. apríl 2009
14 blaðsíður komnar í ritgerðinni fyrir Byggð og samfélag. Það er að koma mynd á hana núna. Skil eru á miðvikudaginn, svo ég hef enn tíma. Á alveg eftir að klára suma kafla og niðurstöðurnar eru alveg eftir en þetta er barasta skemmtilegasta ritgerð sem ég hef skrifað. Það var gaman að taka þátt í námskeiðinu, sem snerist allt um ritgerðirnar. Er bara komin með áhugaverðar niðurstöður, úr rannsókninni á mannfjölda og fjölskyldusögu í Garðahverfi á 18.öld. Stefni á 18 bls.:D
Annars er bara allt gott að frétta. Próf 6 maí, kosningar hjá Fróða, félagi sagnfræðinema í kvöld og svo kosningar á morgun. Allt að gerast. Er búin að bjóða mig fram sem sjálfboðaliði á kosningamiðstöðinni á morgun, hjá VG. Myndi óska samt að ég hafi getað farið norður en það er ekki alltaf hægt að gera allt sem maður vill:S.
Eitt fyndið gerðist í gær samt. Ég hringdi í Brekkutröð og þar svaraði mamma. Ég byrjaði umsvifalaust að tala um kjóla, en þegar manneskjan svaraði aftur þá fattaði ég að þetta var bara alls ekki mamma. Þetta var Steinunn! Afskaplega fyndið. Við erum alltaf að tala um að fólk ruglist á okkur í símann, útaf því hve raddirnar okkar eru líkar í símanum en svo gerist það bara fyrir mann sjálfan! HAHAHA! Steinunn svaraði bara samviskusamlega, jájá.. en viltu ekki tala við mömmu.. hehehehe..
Annað fyndið gerðist í gær. Ég tók út grísakótelettur útá miðvikudag, en þær voru ekki nógu þiðnar til að elda svo ég setti þær í ískápinn til að elda í gær. Svo tók ég bara út bringur í gærmorgun og fór svo í vinnuna. Höddi sendi mér síðan sms um hvað ég ætlaði nú að gera við allan þennan mat.. hehe.. Þá var bara notað tækifærið og boðið fólki í mat. Og auta var bernaise.. mikið af bernaise..
jæja, best að halda áfram að skrifa.. er núna að skrifa um miðbik 18. aldar og um barnafjölda í Garðahverfi.. mjög spennandi:D
Mynd úr brúðkaupinu hennar Katrínar:)
20. apríl 2009
Hérna erum við stelpurnar í brúðkaupi Katrínar Lilju og Halldórs í mars síðastliðnum:D..
Katrín var mjög falleg í æðislegum kjól með svaka slóða:). Mjög fallegt brúðkaup:) Er í græna kjólnum mínum, sem ég keypti í Rokk og Rósum, keypti veskuna í spútnik. Mjög ánægð með þetta outfit:D
Rok og rigning
19. apríl 2009
Það er rok og rigning í Reykjavík, veðurlega séð og pólitísklega séð. Á öldum ljósvakamiðla duna auglýsingar frá sjálfstæðisflokknum, sökkvandi flokk sem reynir örvæntingafullur að grípa í eitthvað til að halda sér á floti.
Á http://www.smugan.is er hægt að finna áhugaverðar greinar skrifaðar af flokksmönnum Vinstri Grænna. Sjálf styð ég vinstri græna, en styð alla að kynna sér málefni allra flokka fyrir kosningar. Kynnið ykkur málefni, hvar þið finnst ykkar skoðanir passa. Viss um að þið veljið rétt:)
Á http://www.vinstri.is/media/pdf/malgagn/illgresi_netutg-1tbl2arg2009.pdf er hægt að finna málgagn ungra vinstri grænna, en á slóðinni finniði nýjasta tölublaðið sem kom út núna í apríl.
Það er svo mikið að gera hjá manni að maður hefur varla tíma í að fara í sturtu, hvað þá blogga. Skilaði ritgerð í seinustu viku, á að skila lestrarskýrslu á morgun, sem ég verð að taka á hundrað á morgun, því ég var að vinna um helgina og hafði engan tíma í hana. Skila svo ritgerð eftir viku sem ég er að vinna í og legg mikinn metnað í. Svo er byrjuð próflestur, fyrsta og eina prófið 6.maí. Byrja í vinnuni 10.maí en er síðan að skila síðustu og þriðju ritgerðinni 15.maí. Almennt skrítið að maður haldi heilbrigðum haus, með þetta allt hangandi yfir sér.
Að því sögðu, held ég að ég komist ekki norður næstu helgi í fermingunnar hennar Guðrúnar Baldwins og Öldudóttur. Verð með ykkur í anda. Langar samt mikið að koma að hitta fólkið og fá fermingarkökur.
Mun anda mun, mun, mun léttar þegar ég hef skilað seinustu ritgerðinni. Úff…….
Á Ipodnum eru:
15. apríl 2009
Elvis Presley
Marilyn Monroe
Stevie Wonder
Billie Holiday
Aretha Franklin
Joss Stone
Emilana Torrini
K.C. and the Sunshine band
The Pointer Sisters
Hera
Madonna
Mandy More
Michael Jackson
og síðan langar mig rosalega í Duffy og Prince. Er á biðlista á bókasafninu eftir Purple Rain með Prince. Ætlaði að kaupa mér Duffy um leið og ég keypti disk með Elvis í Perlunni, á CD markaðinum mér fannst hann svo dýr. Keypti fimm diska sett á 3000 þegar tveggja diska sett með Duffy kostaði 500 kr.ódýrara. Ætla sofa á því. Fer kannski aftur og fjárfesti í honum. Síðan virðist ekki hægt að nálgast Romy and Michelle’s highschool reunion neinsstaðar!.. oh..
9.apríl.09
10. apríl 2009
Þá eru 25 ár að baki, en ætli maður verði eitthvað vitrari með árunum? Rannsóknir sýna að svo er ekki raunin, heilinn minn hefur núna náð toppnum og mun bara fara niður þegar árin líða. Ég skil ekkert í þessari rannsókn. Mér finnst einmitt næstu 20 ár vera mest spennandi. Þegar ég lít til baka þá skemmtu foreldrar mínir sér mjög vel þessi ár og skemmta sér mjög vel enn í dag og eru sko með fullu viti:D.
Gærdagurinn var frábær. Bakaði kökur, mexíkóskar ostabrauðrétt og sítrónuostaköku. Já, það var sko ostaþema, hehe. Bæði heppnaðist mjög vel, og gestirnir líkuðu við þessar tilraunir mínar. Það var bókaafmæli í ár, fékk alveg snilldar bækur, Bréf Vestur Íslendinga, Saumagleði, Einfalt og litríkt á prjónana, Föndur, Bréf til Láru og Eyfirsk skemmtiljóð. Einnig fallega eyrnalokka, íslenska hönnun, mjög flotta - síðan eru hérna blóm á borðum - alltaf gaman að fá blóm. Síðan fékk ég mjög flott glös frá BodaNova, flotta eyrnalokka, og bragðgóðar vínflöskur síðastliðinn föstudag, þegar var haldið hérna í hlíðinni diskófriskópartý. Svo má maður ekki gleyma snilldar gjöf sem mér barst í fyrradag, buffhamar.
Þakka kærlega fyrir allar æðislegu gjafirnar:):)
Hörður bauð mér síðan út að borða í gærkvöldi, fórum á Tapasbarinn og fengum okkur eitthvað sem heitir Óvissuferð. Þá valdi kokkurinn 7 góða tapasrétti, lambakjöt í lakkríslegi, andabringur, humar, nautakjöt í teryaki, kjúklingur, parmaskinka og eitthvað sem ég hef smakkað áður, döðlur í beikoni. Við fengum fordrykk á undan og brauð en síðan alveg magnaða súkkulaðiköku á eftir. Mæli sko með þessum stað. Þetta var rosalega ljúffengt og sniðugt að hafa rétti í litlum skömmtum, og þá er hægt að smakka meira.
Kvöldinu lauk síðan fyrir fram sjónvarpið en við skelltum Sweeny Todd í tækið, sem er einhverskonar söng-horror mynd með Johnny Depp, en Johnny kallinn stendur alltaf fyrir sínu. Sérstök mynd en þess virði að horfa á, til að sjá manninn syngja, hehe.
25 ár að baki, ég verð sko vitrari með árunum!





