31.mars

31. mars 2009

Jæja, ekki tími á maður bloggi nú aðeins:D:D.

Fór á hádegisfyrirlestur í dag, um atburði 30 marz 1949, séð frá sjónarhorni sjálfstæðismanns sem var einn af þeim sem stóð skjaldborg um Alþingishúsið til að verja það frá fólki, sem hann kallaði kommúnista. Svolítið stórt tekið til orða varðandi alla mótmælendur og allt fólkið sem var statt á Austurvelli þennan dag sem var ekki hvítliðar eða aðrir sem stóðu þarna til að verja alþingi.  Hann titlaði alla mótmælendur sem kommúnista.. greinilega harður stuðningsaðili sjálfstæðisflokksins þar á ferð.  Þetta var samt mjög áhugaverður fyrirlestur og gaman að fá að heyra frá manni sem var staddur á staðnum. Einnig voru þarna aðrir sem höfðu verið þarna þennan atburðaríka dag sem sögðu frá sínum upplifunum.

31.mars í dag, sérstakur dagur:). Ég og Hörður erum búin að vera saman í fjögur ár:) - ætli maður verði ekki að hafa eitthvað gott í matinn;)..

Annars er bara allt gott að frétta. Diskóafmælispartý á föstudag og manni byrjað að hlakka ansi mikið til þess djamms.. það verður stuðstuðstuð!!:D:D:D

May it be

28. mars 2009

May it be an evening star
Shines down upon you
May it be when darkness falls
Your heart will be true
You walk a lonely road
Oh! How far you are from home

Mornie utúlie (darknesss has come)
Believe and you will find your way
Mornie alantie (darknesss has fallen)
A promise lives within you now

May it be the shadows call
Will fly away
May it be your journey on
To light the day
When the night is overcome
You may rise to find the sun

Mornie utúlie (darknesss has come)
Believe and you will find your way
Mornie alantie (darknesss has fallen)
A promise lives within you now

A promise lives within you now

Afskaplega fallegur texti eftir Ryan Roma, lag eftir Enyu og flutt af Enyu.  Lag úr Lord of the rings. Fyrir þá sem vissu það ekki er ég mega L.O.T.R. aðdáandi.

Í hádeginu mínu í morgun þá ákvað ég að koma við á bókasafninu og athuga hvort Purple rain með Prince væri nokkuð inni.  Eins og allir vita þarf maður að borga í stöðumæla í miðbæ Reykjavíkur, en þar sem ég lagði á bílastæði þar sem var svona miðasystem og þurfti þá að fara að borga í einhver stöðumælakassa sem var á miðju bílastæðinu.  Á leið minni frá kassanum keyrði framhjá mér bíll, sem stöðvaðist og ungur maður hljóp úr bíl eitthvað. Ég kippti mér ekki upp við það og lappaði að bílnum mínum, en þegar ég dró upp lykillinn hljóp þessi sami ungi maður að mér, haldandi á vettlingnum mínum sem ég hafði greinilega misst á leið minni frá stöðumælakassanum.  Ég var svo hissa á svipinn, að mæta enn góðmennsku í þessum heimi að eina sem kom upp úr mér var einfaldlega stórt TAKK og bros.

kveðjur, Alma

sem var snortin af góðmennsku náungans í dag..

….

22. mars 2009

Vá, hvað það er mikið að gera hjá manni. Alltof, alltof mikið að gera. Á að skila lestrarskýrslu fyrir 4 á morgun. Þarf að fara drífa í ritgerð, en þar hefur bara ekkert verið að gerast!.. Hef ekki getað komið mér í ritgerðarformið.. hef haft alltof mikið að gera.  ..

Heilsan er að koma til eftir heila viku í heilsufarsveseni. Búin að vera leiðinleg vika..

jæja, vona að næsta verði betri.. - verð að halda áfram..

Marilyn Monroe

16. mars 2009

Er heima að hlusta á disk með Marilyn Monroe - The essential recordings. Verð að segja að diskurinn er bara góður. Stelpan kunni alveg að syngja, þó það hafi ekki lagt áherslu á það í gegnum árin heldur kynþokkann.

Marilyn Monroe

Marilyn Monroe var fædd Norma Jeane Mortenson þann 1 júní árið 1926 í Los Angeles í Kaliforníu í Bandaríkjunum.  Hún var skírð Norma Jeane Baker, með eftirnafni móður sinnar þar sem óljóst hver faðir hennar var.  Móðir hennar þjáðist af andlegum sjúkdómi og var að lokum lögð inn á geðsjúkrahús, og skildi dóttur sína eftir á munaðarleysingjahæli. Marilyn eyddi æsku sinni á fósturheimilum. Árið 1937 flutti hún til fjölskylduvinar, en þegar þau fluttu í burtu og gátu ekki tekið Marilyn með sér, átti hún aðeins tvo kosti: að fara aftur á munaðarleysingjahælið eða að gifta sig. Svo árið 1942, giftist hin 16 ára Marilyn hinum 21 árs nágranna sínum.  Eftir tvo hamingjusamleg ár, fór eiginmaðurinn í sjóherinn.

Hún var síðan uppgvötuð þar sem hún vann í banka í Burban í Kaliforníu, af ljósmyndara.  HMarilyn Monroeún var gerð fyrir myndavélarnar, og varð strax innan tveggja ára byrjuð að vinna með frægum leikurum þessa tíma.  Eiginmaðurinn kom heim 1946, og þá þurfti Marilyn að velja á milli hjónabandsins eða ferilsins, og eins og við öll vitum valdi hún það síðara.  Hún breytti nafni sínu í Marilyn Monroe og litaði hárið ljóst og komst á samning hjá Twentieth Century Fox, árið 1946.  Hún skaust fljótt uppá stjörnuhimininn.  Eftir fjölmargar myndir, árið 1955 þá varð Marilyn orðin þreytt á ljósa hárinu, kynþokkanum og áhuga manna á henni.  Hún vildi verða alvöru leikona. Hún sagði bless við Holliwood og fluttist til New York og stofnaði sitt eigið kvikmyndafyrirtæki. Fyrirtækið framleiddi verðlaunamyndir og Monroe fékk Golden Globe verðlaun fyrir leik sinn.

Árið 1961 lék Marilyn Monroe með Clark Gable í myndinni The misfits, reyndist vera seinasta mynd þeirra.  Árið 1962 var hún kosin Female World Film Favorite á Golden Globes.  5 ágúst það sama ár fannst hin 36 ára gamla Marilyn Monroe dáin í rúmi sínu í Kaliforninu.  Eftir 16 ár í bransanum og 30 myndir.  Marilyn Monroe breyttist í tákn kynþokkans og fegurðar og er enn gífurlega fræg - allir þekkja nafnið Marilyn Monroe. ( heimild: http://www.marilynmonroe.com/about/bio2.html )

Verð að bæta því við að það hafa verið margar samsæriskenningar varðandi dauða Monroe.  Ein sú stærsta kemur J.F. Kennedy, forseti BNA við - og að CIA eða FBI hafi drepið Monroe. Svo eru þær raddir sterkar að Monroe hafi verið í eiturlyfjum og drukkið mikið, sem held ég hafi fengið einhvern hljómgrunn. Við munum hinsvegar aldrei komist að því, en hvernig sem dauða hennar kom að, þá var hún mögnuð leikona og söngkona og við skulum minnast hennar þannig.

Er aðeins búin að sjá eina mynd með þessari frægustu leikonu 20.aldar Some like it hot, sem Marilyn Monroe fékk Golden GlSome like it hotobe verðlaun fyrir leik sinn, árið 1959 aðeins þremur árum fyrir dauða hennar. Myndin er gamanmynd og mjög fyndinn - með Monroe léku þeir Tony Curtis og Jack Lemmon.  Þeir félagar lenda í vandræðum og verða vitni af morðum og fela sig meðal hljómsveitar sem eru aðeins konur.  Þeir þurfa að klæðast kvenmannsfötum til að komast hjá að verða uppgvötaðir.  Í því gervi hitta þeir fyrir kynbombuna Marylin Monroe sem leikur þar persónuna Sugar Kane, Monroe söng í myndinni I wanna be loved by you - sem er á disknum sem ég er að hlusta á The essential recordings. Fékk hann á bókasafninu, maður þyrfti að eig’ann bara. Verð að nálgast myndina einhverstaðar, ásamt Breakfest at Tiffany’s með Audrey Hepburn, sem er mynd sem allir verða sjá - Hepburn er æðisleg í henni.

Annars er allt gott í fréttum. Hörður er á fullu í lokaverkefninu sínu.  Ég í skólanum. Er að skrifa ritgerð um fjölskyldur á Görðum á 18.öld og svo í öðrum verkefnum líka.  Var að vinna um helgina, og náði að ná mér í einhverja bévítans hálsbólgu, og er því heima í dag. Má ekki vera veikari í þessari viku - það verður einfaldlega of mikið að gera. Förum í vettvangsferð á miðvikudag til Grindavíkur.

jæja.. best að fara fá sér nýjann skammt af tei…

twitter.com

13. mars 2009

Enn einn tímaþjófurinn hefur birst á öldum vefmiðla, en það twitter.com. Þar er í raun bara enn eitt tólið til að hafa samskipti sín á milli, án þess að hringja eða hittast í raun og veru.  Hvað er að nútímafólki og leti? Því þetta er ekkert annað nema leti.  Maður skráir sig inn, býr til eitthvað flott notendanafn og hlaðar inn mynd af þér og voila, þá geturu byrjað að láta heiminn vita í 140 bókstafa takmörkun, hvað þú ert að gera, hvað þér finnst um eitthvað eða bara segja: mér leiðist og á mér greinilega ekkert líf.

Búin að segja þetta, þá verð ég einnig að segja það að ég er auðvitað búin að skrá mig á twitter.com og búin að skrá inn alls 11 sinnum um allt og ekki neitt innan 140 bókstafa takmörkun. Maður verður auðvitað að fylgjast að nýjustu tækni og tólum í heimi sem getur mjög auðveldlega farið langt fram úr manni, tæknilega og fréttalega séð. Hugsið ykkur að vera í sumarbústað, án rafmagns, netsins og síma í mánuð! Heimurinn getur farið kollvörpum á þessum tíma. Ísland gæti verið búið að skipta um ríkistjórn, farið á hausinn enn á ný, Evrópa komnir undir rauða risanum í austri og kalt stríð hafist af fullum krafti enn á ný. Og þú gætir hafa verið talinn af, útaf því að þú værir ekki búin að koma á facebook og twitter, og bloggað í mánuð!

Fólk, og já þ.á.m. ég, skoða Facebook mörgu sinnum á dag! Og nú hefur Twitter ráðist inn á íslenskan markað, þó að það séu enn mjög fáir íslendingar á twitter.  Enn sem komið er, allavega. Við munum nú hvað gerðist hér, bara innan síðastliðis árs - meira en hálf þjóðin á facebook.

Persónulega er ég á öllum miðlum, feisinu, blogginu og nú twitter. Reyni þó að takmarka persónulegar upplýsingar um mig til fólks sem ég þekki ekki, á feisinu og twitter. Ekkert á móti þessu, bara skemmtilegt að hugsa um alla þessa nýju miðla. En fólk má nú samt ekki gleyma sér í twittinu og feisinu og gleyma að hafa samand á gamla góða mátann, hringja eða senda sms og svo ég tali ekki um að skreppa einfaldlega í heimsókn.

En þeir nútímavæddu íslendingar sem hafa áhuga á twitter, aðeins fara á twitter.com og skrá sig inn, með vefpóstfangi, búa sér til lykilorð og svo eitthvað notendanafn, sem mér finnst ætti helst ekki að vera þitt eigið nafn. En það er nú bara mín skoðun.  Sjálf ber ég nafnið Septemborg á twitter, en það var nafn langa,langaömmu minnar. Septemborg Loftsdóttir, átti dótturinna Steinunni Haraldsdóttur sem átti svo Brynhildi Rögnu Finnsdóttur sem er amma mín:).

Endilega leita mann uppi, þeir sem eru á twitter.. gaman væri að “hitta” ykkur þar..

Sjáiði bara, maður er þegar byrjaður að “mæla sér mót” við fólk sem maður þekkjir, en á vefnum.. Er maður ekki sorglegur…?:)

bkv, Alma