fyrir norðan..
27. febrúar 2009
Þá er maður komin norður í sæluna:).. snjósælu:), heim í faðm fjölskyldunnar og kattarins Blandons. Sem hefur nú stækkað ansi mikið, hann er eins og lítið ljón:). Lenti í gærkvöldi, maður tók bara flugið - algjör lúxus, ég veit - en þvílíkur tímasparnaður.
Kom nú ekki tómhent, heldur þá kom ég með fullan haldapoka af efnum handa snillingnum móður minni. Hún ætlar að sauma á okkur systurna kjóla sem eru sérhannaðir af henni og voða flottir.
Kom líka með lærdóminn með mér.. maður fer ekkert án hans. Hehe.. Lærdómurinn er að þessu sinni greinargerð og undirbúningur fyrir ritgerð, er að fara skrifa um Fjölskyldugerð á Görðum á Álftanesi á 18.öld. Bara akkúrat mitt uppáhaldsefni, fjölskyldusaga og gerð þ.a.s. ekki endilega álftanesið, þó það sé nú auta fallegt:).
jæja best að gera eitthvað.. kannski að knúsa köttinn…??
norður…:)
23. febrúar 2009
Þá er það komið á hreint. Maður er á leiðinni norður, á fimmtudagskvöld. Alveg hreint æðislegt:)
22.feb
22. febrúar 2009
Það er svo mikið að gera hjá manni að maður þyrfti næstum því ritara til að halda öllu til haga. Konudagur í dag, og ég hafði nú næstum því engann tíma að dekra við sjálfa mig. Takið eftir því að ég skrifaði, næstum. Fór nefnilega í langa og heita sturtu í morgun, keypti mér svo gott að borða á leiðinni í vinnuna og þannig náði maður aðeins að dekra við sjálfa sig:). Á morgun er nefnilega fyrsta prófið á þessu misseri - 100% lokapróf í Heimspekilegum forspjallsvísindum. 100% krossar - 30-50 sp.. Úff, það er nú ekki idíeal próf fyrir sagnfræðinema sem búin að venjast aðeins 4 spurningum í hverju prófi og allt ritgerðaspurningar.
Svo eru 2 önnur stór verkefni sem munu eiga hug mann allan í vikunni, því nú er verkefnavika og þá dæla kennarar í manni verkefnum. Alltaf eins hvert misseri - lítið að gera fyrir verkefnaviku, en þegar hún kemur, biddu fyrir þér! Að vísu er það stór plús að þessi tvö verkefni eru bæði mjög skemmtileg. Annað er lestrarskýrsla um makaval íslendinga fyrr á öldum og hitt er bara undirbúningur fyrir ritgerð um fjölskyldugerð á Görðum á Álftanesi á 18.öld.
Svo er maður auðvitað að þykjast að eiga eitthvað líf. Árshátíð Fróða á leiðinni og brúðkaup hjá vinkonu minni. Já, mikið að gera. Samt ætla ég nú að reyna gera bollur á morgun, elska þennan dag - sérstaklega í ljósi þess að ég vinn ekki lengur í bakarí og þarf ekki að byrja vinna á miðnætti og vinna langt fram á næsta dag að gera bollur. Nú tekur það mun minni tíma - og ég get borðað þær:)..jei:)
Klukkutími eftir að vinnuni, kannski maður kíkji í bollukaffi hjá Göggu strax eftir vinnu.. samt er próf á morgun og kvöldið verður að fara í lestur.
jæja.. best að gera eitthvað…
dúmdúdúdúdú….
18. febrúar 2009
Nýjustu fréttir herma að Alma Sigrún Sigurgeirsdóttir, ung háskólastúdína frá Eyjafirði, hefur gengið til liðs við Vinstri Græna. Óljóst er hvernig fjölskyldan og vinir taka þessum fréttum.
Febrúar
11. febrúar 2009
Ljóst er í sagnfræði að algengt sé að sagnfræðingar marki sér tímabil, miða jafnvel námið við það og ritgerðina síðar meir og áframhaldandi sagnfræðistörf og rit. Margir kennarar sem hafa kennt manni við Háskólann segja sömu sögu. Auðvitað velur hver og einn sitt uppáhaldstímabil, og það skil ég mjög vel. Persónulega hef ég mestann áhugann á 18 og 19 öld og fyrri hluta tuttugustu aldar með áherslu á fjölskyldusögu og samfélagssögu. Myndi vilja rannsaka hvernig þróunin var í fjölskyldusögu frá upphafi 18 aldar fram til lýðveldisstofnunnar eða eitthvað slíkt. Hinsvegar detta mörgum í hug, þegar þetta tímabil er nefnt, sjálfstæðisbaráttan. Mér finnst auðvitað, eins og öllum íslendingum, sú barátta mikilvægt tímabil í sögu þjóðarinnar en finnst að það megi ekki einblína á það og sjá aðra mikilvægar þróanir á þessum tíma. Eins og hvernig fjölskyldugerðin þróaðist, hvernig líf íslendingsins breyttist þegar framfarir urðu.
Ætli maður sé ekki farin að móta sér sitt uppáhaldstímabil, en geri það þó með ákveðnum fyrirvara. Því þó að sérfræðinga í vissum tímabilum sé alltaf þörf, þá má starf manns sem fræðimaður ekki vera einhæft og sagnfræðingar ekki vera hræddir um að skrifa um önnur tímabil í sögunni, mannkyns eður íslandssögu.
Sjálf held ég að ég haldi mig við íslandssöguna, garðurinn er sko nógu stór að gresja úr - eða eitthvað svoleiðis;)..
- Í annað þá er að frétta úr Bólstaðarhlíðinni að við höfum loksins geta tamið þennan villta fugl okkar, sem fyrir nokkrum vikum byrjaði að garga stanslaust. Allan daginn - alla daga. Við þróuðum meðferð fyrir hann og my golly! það virkaði! Kannske ættum við að hætta í sameindalíffræði og sagnfræði og gerast fuglaþjálfarar og ferðast um heiminn?
Nei annars.. held við höldum okkur við það sem við erum nú byrjuð á:). Annars er Hörður að klára BS nám í Sameindalíffræði í vor og fer að öllum líkum beint í Master, hér á Íslandi:) - svo við erum hvergi hætt í námi. Ætli maður reyni ekki við masterinn líka - þó það auta fari eftir öllum einkunum;)..
Svo er ég á fullu í að prjóna og hekla um þessar mundir, næstum farin að hekla í svefni;) - nei, það er nú ekki orðið svo slæmt. Er að prjóna vettlinga handa Herði og leika mér í heklinu;):):)
Svo segjum við allt gott.. heilsan ágætt - mætti vera betri þó en maður lifir:) Er að fara í tímapróf á föstudag svo ég verð að halda áfram að lesa.. er að lesa niðurstöður úr 16 doktorsritgerðum og allt mjög áhugavert:)
Knús og kossar:)
Mótmælasögur
7. febrúar 2009
Margt að gerast í Lýðveldinu Ísland um þessar mundir og grösugan garð að gresja fyrir unga sagnfræðinema. Þrír ungir sagnfræðinemar hafa hrind af stað verkefni sem heitir Mótmælasögur og eru þeir að reyna skrá niður sögur frá mótmælunum í janúar, úr Búsáhaldabyltinguni svokölluðu. Verkefnið er í samstarfi við Miðstöð Munnlegrar sögu á Landsbókasafni - Háskólabókasafni.
Þessir ungu sagnfræðinemar heita Óli Már Hrólfsson, Kristján Hrannar Pálsson og Narfi Jónsson og eru þeir búnir að stofna hóp á www.facebook.com http://www.facebook.com/home.php#/group.php?gid=65829796976 fyrir þá sem hafa áhuga á þessu frábæra framtaki þeirra geta gengið í hópinn eða sent þeim vefpóst á veffangið sagnfraedi@gmail.com
Með þessu vilja þeir safna sögum af mótmælunum og þar með að skrá þær niður fyrir komandi kynslóðir.
Mæli eindregið með fyrir þá sem vilja, að hafa samband við þá:)





