Prjónandi vitleysingur

29. janúar 2009

Vettlingarnir ganga ágætlega. Ætti geta klárað þá í dag. Enda ekki seinna vænna! Höfuborgin hefur breyst í þvílíkt vetrarríki! Snjór, snjór og ekkert nema snjór allstaðar:) Alveg hreint æðislegt!:D

Ætla næst að prjóna vettlinga handa Herði mínum. Hann hefur lagt inn pöntun á vettlingum. Ætli maður verði ekki að skreppa aftur í garnabúðina.. Kannski sniðugt að fá Göggu frænku bara með sér í Hagkaup og kaupa í vettlinga og kannski húfu og sokka.. Ódýrara held ég en að fara þangað sem ég hef verið að fara en það er Prjónasambandið á Skólavörðustíg.

jæja.. klára þessa fyrst.. hehe..

kv.Alma

.. ps.. svo getur maður kannski farið að hugsa um ullarpeysu?

prjóniprjóniprjón:)

27. janúar 2009

Hér sjáiði mynd af nýjasta verkefninu í Bólstaðarhlíðinni. http://picasaweb.google.com/AlmaSigrun/Handverk?authkey=qA6ZB3cGk9Y&feat=directlink

Seinast var það teppi sem ég heklaði handa vinkonu minni í tilefni að barnalukku hjá henni en eftir að það kláraðist var eitthvað skrítið að hafa ekki eitthvað í höndunum.  Ætli þetta séu ekki genin sem séu þarna að verki enda handverkskonur í ættinni. Mamma er nýlega komin af stað með sitt eigið fatamerki en vantar enn heimasíðu. Hún hefur saumað mikið á okkur systur og þetta skref því ekkert mál;).

Eins og gengur, kemur alltaf gat á alla vettlinga hjá manni eftir ofnotkun og var því ekki spurning að prjóna vettlinga.  Liturinn varð auðvitað uppáhaldsliturinn, brúnn, og notaði ég hvítt mjög, þykkt garn.  Af þeim sökum verða þeir afar þykkir og því góðir í frostinu.  Ætla svo að prjóna mér grifflur eða hólka úr appelsínugula garninu sem sést á myndinni.  Höddi hefur svo lagt inn pöntun á vettlingum svo það ætti að vera nóg að gera í þessum málum:) - sem er ekkert nema gott:).

Svo sjáiði þarna líka, undir vettlingum, afar góða bók sem allir ættu að eiga ,, Vettlingar og fleira eftir Kristínu Harðardóttur. Náði að fylgja alveg uppskriftinni að einföldum vettlingum og bætti mínu munstri inn og vona að þetta hafi komið út ágætlega.

Fleira í fréttum er ekki mikið nema, Hörður keypti sér í afmælisgjöf, frá foreldrum mínum, Steinunni systur og Garðari bróður, myndavél sem vantaði sko á heimilið eftir að fyrri myndavél lenti í hremmingum. Mjög flott myndavél:).  Hann er síðan byrjaður á rannsóknarverkefninu sínu í krabbameinsrannsóknum. Svo snjóar hér í höfuðborginni, mér til mikillar gleði!:D:D:D:D

Annars er skólinn á fullu og mjög spennandi önn framundan, þó mun hún líða hratt enda mikið að gera.

kveðjur úr hlíðinni góðu:)

p.s eitthvað gengur illa að setja myndina inn en set bara inn linkinn.

Appelsínugul!

22. janúar 2009

Var í þessu að frétta af frábæru, appelsínugulu framtaki:). http://www.appelsinugulur.is/

Verum appelsínugul!:)…

kveðja:)

Appelsínugulur er einnig á facebook! - Mætum á mótmæli í appelsínugulu og með því fordæmum við ofbeldi og styðjum friðsöm mótmæli!

20.janúar 2009

20. janúar 2009

Atburðir dagsins fara okkur íslendingum seint úr minni.  Mótmæli við Austurvöll er að verða að daglegum atburð en mótmælin í dag voru þó öðruvísi. Hvort það sé reiðin, ofbeldið eða hreinlega harkan í mótmælendum og lagana vörðum þá markar þetta tímamót í sögu íslands. Ekki er gaman að horfa á ofbeldi á Austurvelli í fréttum sjónvarps en um leið brestur eitthvað í mér. Litli sagnfræðingurinn inní mér, horfir inní framtíðina og sér fram á vinnu, skrifandi um atburði dagsins og gefandi út Sögu mótmæla á Íslandi. Sagnfræðingar geta ekki annað! Við erum að læra að skrifa um söguna, erum að verða að fræðimönnum með viss gleraugu á nebbanum. Sagnfræðingagleraugu.

Er viss um að í þessari sögu mótmæla á Íslandi mun standa, að vorið 2009 var efnt til kosninga. Það vor markaði tímamót í sögu Íslands þegar sjálfstæðisflokkurinn steig loksins úr ríkisstjórn eftir alltof langa setu.  Bíðið bara. Það mun gerast.. vonandi áður en mótmælin verða of hörð. Djók, þau eru þegar orðin of hörð!

Hvað þarf eiginlega að gerast til að þeir efni til kosninga? Ja, maður bara spyr sig.

kveðja..

Alma, sem styður friðsöm mótmæli og er svoldið leið á mótmælum.. boða þarf til kosninga strax.. hvað þarf þjóðin að gera til þess að ráðamenn hennar skilji? Segi bara, við skulum ekki ráða þessa menn aftur! Þeir eru sko reknir!

Búin að komast að þó að Biblían sé nú skáldskapur að þá er allavega eitt rétt í henni. Sunnudagar ættu að vera hvíldardagar. Allir ættu að vera heima hjá sér, slakandi á - lesa kannski góða bók. Fá sér lummur, pönnsur eða vöfflur og heitt kakó og hafa það kósí.  Hinsvegar eru ekki allir sammála mér um það.. ætti kannski að verða heittrúuð kristin kona og heimta vera heima á sunnudögum? Nei, held ég gangi nú aldrei svo langt;)..

Er nú ekki að fara gera neitt slæmt í dag, svo það vegur upp á móti. Er að fara vinna og vinna á Sjóminjasafninu bara besta vinna sem ég hef fengið hingað til, skal ég segja ykkur!

Svo er ég byrjuð á fullt í skólanum. Fín námskeið sem ég valdi, og fyrstu tímarnir búnir og því verður maður að fara vinda sér í að lesa. Mikið að gera í lestrinum og verkefnum á þessari önn því ég verð í þremur próflausum námskeiðum og mikill lestur og verkefni í slíkum námskeiðum. Samt er ágætur lestur fyrir hina með prófunum sem eru að vísu bara litlir áfangar og byrja meira segja ekki í einum fyrr en ég er búin í hinum 1.mars. sem mér finnst alveg ágætt fyrirkomulag.  Er semsagt að fara lesa Málsvörn Sókratesar, held ég að það heiti á Íslensku, eða Apology of Socrates á engilsaxnesku.

Eitt er víst, kæru vinir og ættingjar, að maður er komin á hærra menntastig.. lesandi um Sókrates eftir Plató!…hehehe..

Jæja, vonandi hafið þið það úper gott í dag og náið að hvíla ykkur fyrir komandi viku:)

Kveðjur úr Bólstaðarhlíð

miðvikudagar til veikinda..

14. janúar 2009

Einhver pestarræfill náði í skottið á mér. Er búin að vera með í maganum síðan í gær. Fór að vísu í tíma í dag, leið ágætlega en þegar ég settist niður í tíma þá versnaði það og fór strax heim eftir tímann.  Það er víst einhver leiðinleg pest að ganga, eins og venjulega.

Ligg uppí rúmi með íslandssögubók í fanginu og LOTR í tækinu. Það virkar alltaf:).. með sopa af Coke Cola við og við…