Eitt er ómissandi á köldum vetrarmorgnum sem þessum: heitt súkkulaði.  Leitaði hátt og lágt í eldhússkápunum, ekki var til neitt Swiss Miss sem hefur bjargað köldum, höndum í mörgum, köldum útilegum.  Nesquick, en hvergi fannst það í neinum skápum.  Hvað gera bændur þá?  Þá er aðeins eitt til í stöðunni! Alvöru súkkulaði! Enda geisar vetrarhríð úti, og kaldar, litlar tær öskra á eitthvað heitt í kroppinn.  Og þar sem er spáð kulda og vetrarhríð á landinu næstu daga, þá mæli ég með þegar farið verður næst útí búð að það verður keypt Swiss Miss því ekki er hægt að vera sjóða sér alvöru súkkulaði í hvert skipti þegar manni langar í heitt súkkulaði.  Verst að ég eigi ekki neina sykurpúða…

Tilvalið að fara skreyta, þar sem það er fyrsti í Aðventu í dag og á meðan það er drukkið heitt súkkulaði, kveikt á kertum og hent í sunnudagslummur þá endilega að setja upp seríur, laga til og fara í betri fötin. 

Fyrsti í aðventu ber nú upp á 29. nóvember.  Nú á að kveikja á fyrsta kertinu í aðventukransinum.  Þessi aðventukrans er samkvæmt norður-evrópskri hefð, úr sígrænu greni og með fjórum kertum.  Hvert og eitt kerti hefur heiti skv. kirkjunni en flestir sem halda þessari hefð til haga í íslensku samfélagi í dag, hugsa ekki um þann hluta aðventunnar heldur fremur að þann kærleik sem jólin færa okkur, syngja jólalög, kveikja á seríunum og vera saman á aðventunni.



Rita ummæli