Örlagaríkt ár á enda..

30. desember 2008

Þá er árið senn á enda og þvílíkt ár! Ísland setti örugglega heimsmet í spilltum stjórnmálamönnum og útrásarvíkingum.  Árið var hinsvegar gott fyrir spaugstofuna og aðra íslenska grínleikara sem hafa nú alveg nóg af efni til að endast þeim næstu öldin.

Þetta var hinsvegar alveg hreint ágætasta ár hjá okkur í Bólstaðarhlíð. Í sumar var hringurinn tekin á nokkrum dögum á litlum Ford Ka sem var svakalega duglegur, ka-inn var hinsvegar seldur svo á nýliðnum haustdögum.  Hörður fór margar fjallgöngur í sumar, með ýmist vinum sínum eða sjálfum sér.  Í tveimur þeirra náði hann meira segja að draga mig með en Fimmvörðuháls var tekin á einum fallegum laugardag.  Ég reyndist hinsvegar ekki hafa mikið fjallgöngublóð í mér en reyndi þó mitt besta:). Útsýnið var sannarlega þess virði að leggja á sig marga, marga kílómetra að baki.  Einnig er nú alveg ljóst að Þórsmörk verður heimsótt aftur. Í seinni fjallgöngunni var Keilir tekin aftur.
Við fórum svo um Verslunnamannahelgina og keyrðum Snæfellsnesið og keyrðum svo upp í Siglufjörðinn og svo yfir til Akureyrar og komum óvart í heimsókn í Brekkutröð.

Í haust byrjaði ég mitt annað ár í Sagnfræðinni og Hörður sitt þriðja ár í BS í Sameindalíffræði. Á næsta ári verður síðan útskrift og svo Mastersnám næsta haust.

Næsta ár verður held ég mjög skemmtilegt sérstaklega útaf því að þremur brúðkaupum í ættinni.  Árið verður svo sannarlega minnst sem brúðkaupsárið..hehe.  Svo mun ég hefja mitt þriðja ár í sagnfræði og byrja hugsa um lokaverkefnið. Sem ég er að vísu byrjuð að hugsa um;)…hehe.  Gott verður þó að ljúka öðru árinu í sagnfræði, þar sem það hefur verið mikið að gera svona útaf nemendafélaginu.

Eigiði æðisleg áramót og við skulum öll kveðja þetta örlagaríka ár í sögu Íslands og vona eftir betri framtíð með von um stokkun í ríkisstjórn og vinstri stjórn!

Getur það verið að afkomendur Stefáns Kristjánssonar og Öldu Sigrúnar Alexandersdóttur séu að borða saman í kvöld? Við höfum greinilega öll erft mikla ást á mat, það er víst:).  Í kvöld er það lambalæri sem hafa orðið fyrir valinu.

Nú er vika þar til maður heldur suður á ný. Það verður samt nokkuð í skólann en hann byrjar ekki fyrr en 12 janúar en ætla reyna vinna þangað til svo nógu salt sé til í grautinn;)

Næsta önn verður skemmtileg, námskeiðslega séð. Verð í fimm námskeiðum alls, en tveir af þeim eru litlir og skyldunámskeið. Hin þrjú námskeiðin verða hinsvegar vonandi skemmtileg.  Þau eru Handrita- og skjalalestur, Byggð og samfélag 1500-1800 og Ást, fjölskylda og einkalíf 1600-1900.  Hinsvegar lítur stundarskráin sjálf ekkert vel út því fjóra daga vikunnar byrja ég ekki fyrr en 13:20 og það skemmtir svo daginn allann hjá manni, að byrja svona seint.  Fimmtudögum byrja ég samt um 8:20 og verð búin fyrir tólf, sem verður mjög fínt. Svoleiðis vill maður hafa það! En hinir dagarnir henta afar illa fyrir fólk sem er að vinna með skóla eins og ég. Asnalegt að þeir hafa þetta svona því tímarnir á mán-mið frá 8:20-10:00 eru lausir, og enginn í sagnfræði í tímum þá svo það hlýtur að vera stofuleysi sem veldur þessu.

Jæja, best að halda áfram að gera ekki neitt:)..

.. fann skemmtilega síðu.. www.hats.com - hreint aldeilis frábært.. fyrir þá sem elska höfuðföt eins og ég…

Gleðileg jól

25. desember 2008

Trú er fallegt fyrirbæri.  Í gærkveldi, eftir matarkræsingar og pakkaflóð fór Brekkutraðarfjölskyldan, mínus kötturinn, í jólamessu í Grundarkirkju, eins og hefðin segir til um hver jól.  Fámennara var í kirkjunni þessi jól en gott að komast í það friðsæla umhverfi sem slíkir heilagir staðir eins og kirkjur eru.  Séra Hannes Blandon flutti guðspjallið og englakór söng heims um ból.  Þegar presturinn síðan hélt litla ræðu, eins og hann gerir hver jól, fór litli sagnfræðingurinn í mér að vakna.  Í sagnfræði er okkur kennt að heimildir séu mikilvægar sagnfræðinni, í rauninni eru góðar heimildir allt.  Án þeirra væru sagnfræðingar aðeins sögumenn.  Sagnfræðin er hinsvegar vísindagrein sem byggist á að rannsaka fortíðina útfrá þeim heimildum sem við höfum okkur til halds og trausts.

Þegar sjálfur presturinn ræddi um að þá sagnfræðilegu og heimildalegu stöðu biblíunnar og sjálfs helgiguðspjallið fór hugurinn á kreik. Já, margt í þeirri helgu bók er alls ekki hægt að færa sönnur fyrir.  Sjálft ritið er skáldskapur frá upphafi til enda búið til á miðöldum.  En er það ekki sem trú snýst um? Að trúa á eitthvað, með hverri frumu í líkamanum?  Á miðöldum trúðu menn bókstaflega á að Guð byggi upp á skýji með sinn englakór.  Nú á 21.öld vitum við nú betur en það.  Það býr enginn kall upp á skýji, alveg eins og það býr enginn kall á tunglinu og það sé ekki úr osti.  Að trúa á eitthvað snýst ekki um að sjá það með berum augum til að vita að það sé til, heldur að trúa að það sé til án þess að sjá það með berum augum.

Allt mitt stutta líf hef ég mikið pælt í þeirri trú sem maður var alin upp í, og lengi vildi ég ekki biðja í kirkju því ég vissi ekki á hvað var rétt og hvað var rangt.  Hinsvegar finnst mér í dag að trúin snýst einmitt um að trúa á eitthvað, sem þarf ekki að birtast manni eða maður sér.  Samt vil ég nú ekki halda í þessa barnstrú úr æsku. Svo fyrir nokkrum árum las ég um búddisma, líf eftir þetta líf og karma og þær kenningar heilluðu mig því þar er manni ekki sagt að trúa á einn Guð almáttugan heldur er hin búddísk grunn heimspeki byggð á að gera sér grein að þjáningar eru hluti af lífinu og þeim verður ekki komist hjá, að þjáningar eigi sér uppruna í löngunum - langanir stjórna lífi okkar, til að stöðva þjáningar þarf að koma í veg fyrir langanir og þegar við höfum losið okkur við þjáningar eða Dukkha þá meigum við fara hina áttföldu leið búddisma.  Í hinni áttföldu leið felst viska, siðferðileg rétt framkoma og einbeitni.

Ég fer enn í kirkju, það er mjög friðsæll staður og mikill sagnfræði oft í kirkjum. Þær voru miðpunktur bæja og borga áður fyrr og oft er hægt að finna margar listagersamar í kirkjum.  Einnig er gott að hugsa á svona friðsælum stað.  Og alltaf þegar ég rölta inn í kirkjum fara svona heimspekilegar hugleiðingar af stað, eins og það gerði í gær.

Jæja, nóg af þessum heimspekilegum hugsunum. Vonandi áttuð þið öll frábæran dag í gær og gleðileg hátíð.

Jólakveðja af norðurlandi..

Þorláksmessa

23. desember 2008

Þorláksmessa. Nefnt svo, til heiðurs Þorláki hinum helga Þórhallsson biskupi, sem lést 23desember 1193. Eftir að hann lést var þessi messudagur tekinn upp. Jóhannes Páll Páfi II útnefndi svo árið 1985, þennan sama Þorlák sem verndardýrling Íslands, og er hann eini íslenski dýrlingurinn, allavega í skilningi þess orðs í kristinni trú.

Þessi dagur hefur nú eitthvað breyst í áranna rás. Í dag er þetta seinasti dagurinn til að kaupa jólagjafir, margir hafa þann sið að skreyta jólatréð á þessum degi og enn aðrir borða kæsta skötu sem er gömul vestfirsk hefð sem hefur dreifst um allt land, öðrum íslendingum til mikilla ama.

Nú ættu nú allir að fara þrífa seinasta gólfið, henda í eitt smákökudeig í viðbót, sendast með jólapakka og jólakort til ættingja og vina, borða illa lyktandi skötu og skreyta jólatréð. Seinustu forvöð að taka til jólafötin svo jólakötturinn heimsæki ekki bæinn.

Merking jólakattarins hefur nú eitthvað breyst í Brekkutröð 6, því þar býr eitt villidýr af kattarkyninu sem stelur ekki börnum og þeim sem fengu ekki nýtt fat fyrir jól heldur stelur hann bara fötunum þeirra og setur í bælið sitt. Sá jólaköttur hefur náð í marga sokka, nærbuxur, tuskur, sokkabuxur og heilan handklæðisstafla til að fóðra bælið sitt með, heimilisfólkinu til mikilla ama.

Gleðileg jól!

jólakveðja

10 bestu myndirnar að mínu mati, trilógíur eður ei:

1. Lord of the Ring - Meistaraverk í höndum Peter Jackson leikstjóra með úrvals leikurum og tónlist í höndum John Williams.
2. Star Wars myndirnar - meistaraverk George Lucas, fyrr og síðar
3. Star Trek myndirnar - nauðsynlegt að horfa á - nema myndirnar þar sem Patrick Stewart var fengin að leika.Mary poppins
4. Breakfeast at Tiffany’s - Audrey Hepburn í aðalhlutverki (1961). Rosalega skemmtilegur leikur hjá Hepburn.
5. Sound of Music - Julie Andrews (1959)
6. Mary Poppins - Julie Andrews
7. My fair lady - Audrey Hepburn í aðalhlutverki ásamt honum Rex Harrison (1964)
8. ET - Steven Spielberg. Þessi kemst alltaf inn á listann.
9. Harry Potter myndirnar - einfaldlega of góðar bækur til að verða lélegar kvikmyndir.
10. sætið er laust. Dettur ekkert í hug. Kannski framtíðin beri eitthvað gott í skauti sér?

Fishy Fishy Fishy…

21. desember 2008

fishyfishyfishy