Er þetta ekki það sætasta!!

30. nóvember 2008

Allir í skóginum eiga vera vinir!sætt!!!!!

og eitt í viðbót:

kisa

ein þreytt!

Sunnudagur:)

30. nóvember 2008

Fyrsti í aðventu. Jei. Nú er afskaplega stutt í jólin og þá er afskaplega stutt þangað til að prófunum lýkur:D, jei. Mikið verð ég glöð þá:)mmm

Hef eydd helgini í listasögulestur. Er sko alveg komin með nóg af því að lesa glærur af tölvuskjá. Vá, hvað manni verður illt í hausnum og augunum, og heilinn breytist í listaheilasósu.

Hlakka nú bara til á morgun, að skipta yfir í að lesa fyrir Bretland á 20.öld, lesa í venjulegri bók.. mmm.. venjuleg bók.. mmmmm *slef*

jæja, gleðilega aðventu:) étið fullt af smákökum og drekkið malt með góðum mat.:)

Hvernig væri að fara sauma út?

Sofum ei lengur á verðinum!

29. nóvember 2008

Er gersamlega frosin í gegn af kulda. Ástæðan er þó góð.  Var á útifundinum á Austurvella til að sýna samstöðu með þjóðinni og mótmæla Seðlabankastjóra, Ríkisstjórn, Útrásarvíkingum og fjármálaeftirlitinu fyrir hræðilega framistöðu.  Eins og ég skrifaði nýlega í ritgerð um Vesturheimsferðir Eyfirðinga 1872-1914, hefur útrásin og ævintýraþráin alltaf blundað í íslendingum.  Það gerði það fyrir aldamótin 1900 og það gerði það sama rúmlega öld seinna.  Of mikil útrásar-og ævintýraþrá.

Líkt og víkingarnir, forfeður okkar forðum, leituðu að fjársjóðum og völdum þá leituðu nútíma útrásarvíkingarnir útfyrir landsteinana að fjársjóðum og völdum.  Nú er nóg. Hættið að hugsa um ykkar eigin rass og hugsið um þjóð ykkar.  Þjóð sem þið eruð hluti af. Þjóð sem stendur nú í heljargreipum kreppunnar og sér fram á næstu ár í kreppu.  Þið hafið skuldsett ykkur. Þið hafið skuldsett þjóð ykkar og þið hafið skuldsett komandi kynslóðir. Nú er nóg!

Ekki er nóg um að útrásarvíkingar hætta ekki þessari eilífu græðgi sinni heldur situr ríkisstjórn sem fastast og neitar að færa sig.  Þið verðið að skilja að þjóðin vill breytingu! Þjóðin vill að eitthvað sé gert! Og þjóðin mun mótmæla, laugardag eftir laugardag þar til hún fær sínu fram!

Á mánudag, 1.desember - hátíðisdag stúdenta, munu stúdentar og námsmenn sameinast á Austurvelli til að setja fram óskir sínar til ráðamanna, kl.11:00. Síðar um daginn, kl.15:00, fer fram Þjóðfundur á Arnarhól.

Íslendingar, við skulum ekki sofa lengur á verðinum!

Föstudagur

28. nóvember 2008

Og þá er prófalestur hafinn. Föstudagurinn 28.nóvember og aðeins 10 dagar í fyrsta prófið. Það væri nú aldeilis fínt að það væri ekki meira en svo er nú aldeilis ekki.  Strax daginn eftir er annað próf og svo seinasta prófið er aðeins 2 dögum á eftir. Svo það er lítill tími og nú nýtast skipulagshæfileikarnir.. eða viljinn til að skipuleggja endalaust;).

Á morgun ætlar maður að mæta niður á austurvöll og mótmæla.  Líka á mánudag, en þá eru sérstök mótmæli stúdenta.

Fór í beltapróf í gær. Það gekk frábærlega - þjálfararnir hrósuðu byrjendahópnum mikið og nú er gul rönd á beltinu mínu og aðeins þrír mánuðir þar til ég get fengið gult belti.:)
Jæja, ætla fara drífa í að byrja.. í dag er það listasagan sem verður fyrir barðinu..

Seinasta vika af haustönn er nú næstum hálfnuð.  Kennarar útskýra komandi próf fyrir æði stressuðum nemendum og nemendur reyna rýna í vísbendingar í tali kennara, um komandi próf.  Margir skipuleggja prófalestur, sumir eru þegar byrjaðir og enn aðrir verða ekki stressaðir fyrr en dag fyrir próf og taka það bara rólega.  Ætli ég falli ekki í seinasta flokkinn, nema fyrir utan það að nú er ég að stressast upp fyrir að klára seinusta verkefni haustannarinnar.  Skiladagur er þó ekki fyrr en 15.desember en það er ekkert skemmtilegt að hafa eitt verkefni hangandi yfir sér yfir próflestur.

Nú þegar ég ætlaði að reyna klára viðkomandi verkefni fyrir lok vikunnar þá kem ég mér bara alls ekkert í neinn lærdómsgír.  Er bara frekar löt eiginlega.  Leti getur nefnilega verið æði hrikalegur óvinur þegar mikið er að gera. Og stúdentar finna vel fyrir honum, of oft.

Einnig hef ég annað að hugsa um.  Beltapróf í Taekwon do á fimmtudag. Seinasta æfingin fyrir próf.  Prófið er víst ekki erfitt en er þó orðin stressuð fyrir það.

Annað sem ég verð að blogga um, aðstaðan fyrir nemendur í Háskólanum er orðin alltof lítil.  Háskólatorgið er nýtt og er þegar orðið of lítið í matmálstímum, ekki öll nemendafélög fá aðstöðu og síðast en ekki síst er bókasafnið alltof lítið fyrir 13.000 þúsund manna háskóla! Fáranlegt dæmi.

Making history..

23. nóvember 2008

Fólk er að missa sig í mótmælum, laugardag eftir laugardag.  Nú vil ég nú ekki að fólk misskilji mig og haldi að ég sé á móti mótmælum. Það er nefnilega ekki svo, heldur finnst mér að þetta sé að fara út í öfgar.  Að mótmæla er réttur hvers einasta íslendings. Þó verður fólk að hugsa aðeins áður en það byrjar.  Hverju er ég að mótmæla? Hvar er rétti vettvangurinn? Og hvernig er rétt að mótmæla?

Að mótmæla niðri á Austurvelli er góður vettvangur, þó finnst mér að fólk ætti frekar að standa fyrir utan Seðlabankann eða Ríkisráðshúsið og segja hvað þeim finnst með mótmælendaskiltum og veru sinni, laugardag eftir laugardag.  Að eggja Alþingi, þeirri fornu og virtu stofnun er rangt - ekki erum við að mótmæla Alþingi heldur þingmönnunum sem þar sitja við stjórnvölinn. Förum þá heldur og mótmælum við ríkisráð og seðlabanka. Hættum að eyða matvælum á slíkann hátt.  Að nota matvæli finnst mér rangt, því þeir sem sóa matvælum þannig, í miðri kreppu - geta varla verið í mikilli kreppu, er það nokkuð?

Og svo varðandi mótmælin við lögreglustöðina í síðdegis í gær. Viðkomandi mótmælandi hafði verið handtekinn fyrir útistandandi skuld fyrir mótmæli á Kárahnjúkum, hann hafði ákveðið að borga hana ekki og þá yrði hann að fara í fangelsi.  Það valdi hann og svoleiðis virkar kerfið. Nú, ég er ekki að segja að þetta er gott kerfi. Í fyrsta lagi höfum við rétt til að mótmæla.  Lögreglan var aðeins að gera það sem þeim er skyldugt að gera - að fara eftir lögunum.  Hvort að þau lög séu rétt - er ekki gott að segja.  Ég myndi halda ekki, en að mótmæla lögreglunni er aftur, ekki rétti vettvangurinn. Hverjir setja lögin - Alþingi. Þá ættu mótmælendur að mótmæla frekar þingmönnum.

Svo verð ég að hugsa eins og verðandi sagnfræðingur, og mæta næsta laugardag að mótmæla friðsamlega og fylgjast með þegar íslendingar “make history”..

Bætt við 20:13 - nú eftir fréttir verð ég að endurskoða þetta blogg mitt um lögreglustöðina og handtökuna. Svo virðist sem að lögreglan hafi gert mistök í að handtaka hann, því það hafði láðst að láta hann vita af afplánunni og hann handtekinn strax.  Ljóst er að lögreglan gerði mistök, en aftur fara þeir einungis eftir sem þeim er sagt.  Einnig finnst mér lögreglan hafi þó gert önnur mistök í því að sprauta piparúða á fólkið í stað þess að reyna róa það niður og tala við það. Þó sýnist mér á fólkinu og fréttunum að það hafi ekki verið í neinu ástandi til að geta róað það.  Svo er það aftur : getur maður treyst flutningi fréttamanna á málum mótmælanda þegar það hefur svo greinilega komið fram að þeir sýni mótmælendur í neikvæðu ljósi og eru alls ekki hlutlausir.