Listasöguritgerðarskrif búin - eftir að klára tvær ritgerðir. Samt búin mikið með aðra. Á í rauninni eftir að laga hana til og skrifa 2 eða 3 síður í viðbót.  Svo á ég aðra eftir sem er verkefni í námskeiði á Þjóðskjalasafninu.  Þar eigum við að leita heimilda á safninu og ég held að ég ætli að byrja í því strax í næstu viku, því sú getur tekið einhvern tíma.  Ætla að skrifa um vesturheimsferðir í Eyjafirði og nágrenni.  Tengjist mikið hvað ég ætla að skrifa um í B.A ritgerðinni. Var að pæla að gera hana útfrá tölfræði og svo reyna komast að af hverju fólk flúði frá Eyjarfirði - hvað var að gerast í firðinum og hvernig var ástandið þar.

Í dag er hrekkjavaka. Margir kynnu þó að hugsa með sér - er það ekki amerísk hátíð? Ekki er uppruninn þar heldur á hátíðin rætur á Írlandi.  Hér er smá fróðleikur um hrekkjavöku sem ég sá á vísindavefnum.is.

“Hrekkjavaka nefnist á enskri tungu Halloween sem er annar ritháttur fyrir Hallowe’en. Hallowe’en er svo stytting á nafninu All Hallows’ Evening eða All Hallows’ Eve sem er kvöldið 31. október, vakan fyrir Allraheilagramessu sem er tileinkuð píslarvottum kirkjunnar. Upphaflega var Allraheilagramessa haldin hátíðleg 1. maí hvers árs, en árið 834 var dagsetning hennar færð yfir á 1. nóvember, fyrst og fremst vegna þess að henni var ætlað að koma í staðinn fyrir ýmsar mikilvægar heiðnar hátíðir sem haldnar voru á sama tíma.

Í mörgum evrópskum löndum, þar á meðal á Íslandi og hinum Norðurlöndunum auk keltneskra landa, var árinu skipt í tvær árstíðir fremur en fjórar, eða í vetur og sumar. Menn töldu tímann í vetrum og nóttum fremur en í árum og dögum. Veturinn, eins og nóttin, var talin koma fyrst; mánaðamót október og nóvember var því tími vetrarbyrjunar, og þar með nýárs. Þá tóku kuldinn og myrkrið við, jörðin sofnaði og dauðinn ríkti. Á Íslandi til forna var í lok október haldin hátíð sem kölluð var veturnætur og þá var haldið dísablót á Norðurlöndum (disting). Í norðurhluta Skotlands og á Írlandi er á þessum tíma enn haldin hátíð sem á gelísku heitir Samhain, hátíð hinna dauðu. Í seinni tíð hefur hún fengið heitið Hallowe’en.

Upphaf vetrar og árs er það sem kallað er liminal tímabil, einhvers konar millibilsástand sem ríkir á tímum mikilla umskipta. Þá geta menn jafnvel skynjað handanheima; þeir sjá drauga og álfa, og geta spáð í framtíðina. Greinilegt er að andar voru taldir vera á kreiki á bæði Samhain og veturnóttum (sjá til dæmis Þiðranda þátt og Þórhalls).

Hefð myndaðist fyrir því að á Samhain/Hallowe’en væri brennandi kertum komið fyrir í útskornum næpum og á Írlandi og í Skotlandi tíðkaðist að kveikja í bálköstum. Einnig fóru bæði unglingar og fullorðnir á milli húsa klæddir búningum og með grímur, eins og nú tíðkast á öskudegi Íslendinga, og gerðu öðrum gjarnan einhvern grikk í leiðinni.

Þegar Írar og Skotar fluttust búferlum til Ameríku á 19. öld fluttist Hallowe’en hátíðin með þeim. Í Bandaríkjunum uxu aftur á móti grasker sem voru mun stærri en næpurnar og auðveldari að skera út. Þannig tóku graskerin við af næpunum sem tákn fyrir Halloween Bandaríkjamanna.

Sökum kristnitökunnar lögðust veturnætur smám saman af. Sömuleiðis hurfu margar gamlar kaþólskar hátíðir við siðaskiptin, eða þegar lúterskur siður tók við af kaþólskri trú. Vegna áhrifa frá bandarísku sjónvarpi og kvikmyndum verður þó æ algengara að Norðurlandabúar haldi upp á hrekkjavöku að bandarískum sið. Ýmsir hafa ýtt undir þessa þróun, til að mynda dagblöð, verslanir og jafnvel nemendur í enskudeild Háskóla Íslands. Lítill áhugi virðist þó vera á því að fá krakka í búningum til að ganga um og betla nammi, eins og þeir gera gjarnan á hrekkjavöku í Bandaríkjunum, enda er þegar hefð fyrir slíku hér á öðrum tímum ársins. Fremur hafa háskóla- og framhaldskólanemar, sem ekki eiga lengur kost á að fara á gömlu sveitaböllin á þessum tíma, tekið upp á því að halda ýmiss konar hrekkjavökugrímuböll og grímupartý. Enn sem komið er, að minnsta kosti, er hrekkjavaka Norðurlanda því fyrst og fremst unglingahátíð, rétt eins og Hallowe’en á Írlandi og Skotlandi var forðum.”

Víða í kvöld verða haldin hrekkjavökupartý á Íslandi, því hrekkjavaka er að vera vinsælli. Mér finnst ekkert að því að halda uppá eitthvað skemmtilegt. Fróði ásamt öðrum nemendafélögum er að halda hrekkjavökupartý í kvöld og það verður geeeiiiðveikt gaman:) - er þó eitthvað að veikjast en ætla samt.  Ligg í rúminu þangað til.  Er í skreytinganefnd;) - ætlum að skreyta með köngulóarvef, köngulóum og kertum.  Set inn myndir á morgun svo þið getið séð gleðina:)

Listastrumpur

29. október 2008

Painter smurf

Tók strumpapróf á netinu og það kom í ljós að ég er listastrumpur:) - enn skemmtilegt!:)

Of flott til að sjást?

28. október 2008

Senn líður að nóvember og þið vitið hvað það þýðir! Jólaskreytingar! En á meðan fólk er að lýsa upp hús og hýbýli má það ekki gleyma sjálfum sér.

Fór á æfingu um daginn. Keyrði eins og ég geri vanalega og á leiðinni er ein gangbraut hjá Skógabæ, uppí Breiðholti - rétt hjá ÍR. Það er frekar illa lýst þarna og ég keyrði áfram þar sem ég taldi mig ekki sjá neinn gangandi vegfaranda.  Ég hafði hinsvegar rangt fyrir mér því allt í einu sé ég bílinn á móti stoppa og þá bremsa ég. Þá var fullorðin kona, klædd í svörtu að ganga yfir - ekki með neitt endurskinsmerki.  Hvernig átti ég að sjá manneskjuna? Klædd í svart í þessu myrkri, ekki með neitt endurskin!?

Þegar ég var lítil fannst mér allt vera morandi í endurskinsmerkjum heima hjá mér. Allir voru með endurskinsmerki. Held að það sé enn svoleiðis í Brekkutröðinni en það á ekki við Reykjavík. Um daginn sá ég eina konu með endurskinsmerki og hugsaði með mér hvar hún gæti hafa fengið slíkt.

Krakkarnir í hverfinu ganga alltaf yfir bílastæðið okkar og bílastæði KHÍ til að komast í skólann og hef aldrei séð neinn með endurskinsmerki. Ég geng sjálf mjög mikið núna, í strætó, úr strætó, í vinnuna stundum ef það er gott veður. Held að mér myndi líða mun öruggara ef ég væri með endurskinsmerki á mér.
Af hverju erum við ekki með endurskinsmerki lengur? Er þetta bara svona höfuborgardæmi? Erum við of flott til að sjást með slíkt? Of góð með okkur til að sjást í umferðinni? Mér finnst bara flott að gera sjást í umferðinni og vera þannig öruggari.

Mæli með því að allir trítli nú út í næstu búð og kaupi sér endurskinsmerki og við sjáumst í umferðinni;)

Veljum íslenskt!

27. október 2008

Við sunnudagsmatarborðið á Álfhólsvegi í gær var rædd um ástandið eins og líkast er við mörg matarborðin á Íslandi þessa dagana.  Munurinn á fjölskyldum okkar Hödda er líklegast sá að við matarborðið á Álfhólsvegi verður alltaf briddað uppá heimspekilegum samræðum um lífið og dauðann, og ég er barasta ekki vön slíkum samræðum við matarborðið í Brekkutröðinni. Nefndi það við þau um daginn og þeim fannst það fyndið að hve mér þótti þau heimspekileg í umræðunni.  Sagði að ég væri vön aðeins léttara hjali við matarborðið:D.. hehe. Alltaf gaman á Álfhólsvegi en alltaf gott að komast heim í sveitina:)

Talandi um sveitina, maður heyrir í fréttum að það sé allt á kafi í snjó þarna fyrir norðan. Einmitt þegar ég er í Rvk.. oh.. - vonandi verður allt í kafi í snjó þegar við Steinum komum norður yfir jólin, um miðjan desember.  Það verður sko tekið LANGT jólafrí þetta árið. Er búin nefnilega í prófum 12. desember og við Steinunn komum - 13./14.des, ég verð að vísu ekki yfir áramótin heldur ætla ég suður og taka áramótin í Reykjavík. En það verður frábært að komast norður og liggja í leti. Bara verð að hafa einhverja góða,góða,góða bók með mér og eitthvað í höndunum..

Það verður íslensk framleiðsla í jólagjöfum í ár, það er sko kreppa í gangi krakkar mínir:). Enda eigum við ekki að vera styðja íslenskt og spara?;)

nýtt rúm:)

25. október 2008

Elska veðrið núna:) - snjór, kalt og sól!:) Ekkert betra nema kannski hundslappadrífa.  Er að vinna í dag - vonandi snjóar:)

Erum búin að vera leita hátt og lágt að rúmi sem hentar okkur. Fórum á hvern staðinn á fætur öðrum og víðast hvar var svarið, eigum ekki queen size rúm heldur bara 180 cm. Svo þegar maður svaraði: það er of stórt, þá var bara móðgast.. en við erum loksins búin að finna eitt gott í Ikea. Kaupum það í dag og næsta nótt verður þá sofið í nýja rúminu :D

Karíóí í kvöld:)

24. október 2008

Föstudagur og ég ætla sko að syngja úr mér lungun í kvöld! Það er karíókí kvöld Fróða og það var skorað á okkur af lífeindafræðinemum og við segjum sko ekki nei við áskorun!:D Förum á einhvern tælenskan karíókíbar sem er niðri á laugarvegi.  Það verður stuuuð:D

Er að berjast við ritgerðina mína. Listasöguritgerðina. Er komin með byrjun og eitthvað í meginmál og þá er bara að finna tíma í að skrifa hana:).