Haust
30. september 2008
Það er allt að fara fjandans til í fjármálaheiminum í dag. En á meðan allt hrynur í kringum okkur þá skulum við nú samt njóta þessa fallega hausts sem við fáum þetta árið. Sumir sjá kannski bara eintóma brúna liti og verða leiðir því sumarið er farið og trén eru á leið í dvala. Hinsvegar má sjá ansi magnaða liti í haustinu, ef stoppað er eitt augnablik og horft á haustlitina þá sérðu fleiri liti en bara brúnan.
haustkveðjur:)
p.s bráðum hefst jólaföndrið;) jíbbijei..
Snjór uppí Esju
27. september 2008
Horfi oft út til Esjunnar. Það sama gerðist á þessum kuldalega laugardegi en nú var toppurinn sveipaður hvítum flygsum. SNJÓR! Þá er það hafið. Uppáhaldsárstíminn minn er byrjaður!
Það að vísu rignir núna en ef það er snjór einhverstaðar, þó bara við sjóndeildarhringinn - þá er ég ánægð.´
Mmm.. eftir 1 mánuð eða tvo þá getur maður fengið sér göngutúr í kuldanum og hlustað á marrið í snjónum. Mmm yndislegt! Alveg hreint yndislegt!!
Lady Chatterley’s Lover
26. september 2008
Er byrjuð að lesa bók sem ber heitið Lady Chatterley’s Lover, eftir breska höfundin D.H. Lawrence. Bókin kom fyrst út 1928 og var bönnuð fyrst um sinn í Bretlandi sökum hve dónaleg hún þótti. Ástæða þess að ég les fyrrum bannaða bók er verkefni í kúrsinum Bretlandi á 20.öld.Verkefnið lýsir sér þannig að hver og einn á að velja sér bók sem gerist á Bretlandi eða Breska heimsveldinu á 20.öld, eftir breskan höfund. Svo á að skrifa fræðilega stutta ritgerð um bókina. Bókin byrjar bara vel og ég er spennt eftir að lesa meira:)
Jæja, þá er það föstudagsdjammið. Nú er það bjórkvöld og mikilvægar kosningar - kjósa þarf deildarfulltrúa fyrir Sagnfræði- og Heimspekideild. Þar munu frændsystkinin mætast, Ég úr sagnfræði og Elmar Geir úr heimspeki. Það er spurning hvaða svið nær að koma sínum fulltrúa inn? Ég er þó ekki að bjóða mig fram, finnst ég hafa alveg nóg að gera. Það er þó nokkrir úr sagnfræði sem bjóða sig fram og við ætlum að reyna ná okkar fólki inn.
Kveðjur
Er mér að færast of mikið í fang?…. neeeeeeehhhhhh…:)
25. september 2008
Kannist þið við þetta? Þegar þið hafið svo mikið að gera þá verið þið fórnarlömb leti! Það er hræðilegt! Hef svo mikið að gera í næsta mánuði að einungis hugsinin hræðir mig í letiskast. Það er ekki skemmtilegt.
Það er skil á listasöguritgerð 31.okt, uppkasti á skáldssögurverkefni 17.okt, klára heilan kúrs + tonn af verkefnum 1.-13.okt. Svo ég nefni ekki hvað er mikið að gera í nemendafélaginu, vísindaferðir og partý:). 10.okt - oktoberfest, 17.okt. karíókífest og 31.okt.hrekkjavaka:). Undarlegt hvað skil á verkefnum passa akkúrat við skemmtileg partýveislur:) - það er bara mjög skemmtilegar tilviljanir:D.
Allt er þó betra að það sé mikið að gera í nóvember. Finnst æðislegt að skil á ritgerðum hafa færst svo mikið aftur. Hreint alveg æðislegt.
jæja, best að fara koma sér úr vinnuni og skella sér heim - æfing á eftir:)
- Eftir æfingu: Vá hvað ég er EKKI liðug.. Díses, maður. Við spörkuðum og kýldum að venju… kiuðum.. - en það er öskrið sem maður öskrar. Stundum alltaf við hverja kýlingu, eða spark en stundum þegar maður er búin að gera tíu slík.
- house er fyndinn!!!
Bara fyndið!!
24. september 2008

Rákumst á þennan velnefnda bar á vestarverðu Snæfellsnesinu um Verslunnarmannahelgi í sumar. Bara fyndið!
þorskur með nýrnabaunum..namminamm..
23. september 2008
Gerði þennan snilldar fiskirétt í gær. Þorskur og rækjur með nýrnabaunum, sveppum og lauk í tómatpastasósu. Algjör snilld, og já Tobba, nýrnabaunir passa bara vel með fisk:). Ætli ég hafi ekki þurft að hringja í 2 móðursystur, þar sem náðist ekki í móður mína, til að fá að vita hvort ég þurfti að leggja nýrnabaunirnar í bleyti - niðursoðnar, þurfa semsagt ekki að leggja í bleyti:).
Það er nú vel vitað að konurnar í móðurættinni minni eru mjög skapandi á öllum sviðum - þær prjóna eins og prjónarnir séu framlengingar af höndunu, sauma eins og óðar og elda dýrindismat eins og bestu kokkar, sem þær eru. Það vita kannski ekki vinir mínir úr háskólanum sem allir ráku upp undrandi svip þegar ég sagði þeim að ég væri að mála. Já, ég elda, prjóna, sauma og mála - allt gert til gamans, eitthvað verður maður að gera við tímann.
Alls ekkert ólíkt henni systur minni sem er einnig mjög fær á öllum þessum sviðum. Hún málaði nú málverk af Staðarhóli sem prýðir andyrið hér í bólstaðarhlíð. Og uppi hanga um veggi hjá móður og móðursystrum okkar einhverskonar verk sem þær hafa ýmist gert, saumandi eða bara með höndunum. Ekkert annað en listaverk.
Fólk má samt ekki miskilja, er ekki að fara gerast einhver artifartie. Þetta er bara það sem fátækir nemar gera þegar þeim langar í listaverk - mála það barasta sjálfir! Plús, ég barasta nennti alls ekki að læra og lesa;)..
jæja, svo að þetta sé komið á hreint.





