íslenskir skemmtistaðir með vændiskonur á sínum snærum..
31. júlí 2008
Heyrði það í gær að vissir skemmtistaðir í borginni stunda það að borga ungum stelpum, 18 ára gömlum, ókeypis áfengi, fyrir það eitt að vera inná stöðunum þeirra í þröngum bolum og vera sætar. Hvað er það annað en vændi í sinni ljótustu mynd?
Horfði á Call girls: the truth á Skjá einum um daginn en það var þáttur sem sýndur var í framhaldinu af þættinum um vændiskonuna sem átti það svo gott - þeir enduðu nú þannig að hún var orðin fylgdardama. Í heimildarþættinum Call girls var tekið viðtöl við vændiskonur sem fannst það vel í lagi að starfa sem vændiskona um leið og vera eiginkona og móðir 2 barna. Verð að segja að það er skrítið að heyra konur segja að vændi, eitt elsta starfstétt í heimi, sé ósköp eðlilegt starf og nauðsynlegt á meðan karlmenn lifa í þessum heimi.
Jeminn eini..
Síldó á Sigló
27. júlí 2008
Á safninu leigum við út sal sem er hliðin á andyrinu og er hluti af okkar hluta húsins. Greinilega vinsælt salur því fólk er alltaf að koma og skoða salinn - en að skoða safnið í leiðinni virðist ekki vera inní myndini. Það finnst mér skrítið því að hvers vegna að nota ekki ferðina og skoða safnið fyrst að maður er komin inn. Alls kostar skrítið að mínu mati - auðvitað er maður ekki hlutlaus en come - on!:)
Fólk er greinilega að njóta góða veðursins - þó er sólin farin og svolítið skýjað bara. Nú er tilvalið að leggja frá sér sólgleraugun og koma á Sjóminjasafnið í Reykjavík sem er á Grandagarði 8!
27.júlí í dag og seinasti sunnudagur fyrir Verslunarmannahelgina. Við Hörður vorum lengi óviss hvað við ættum nú að gera þessa verslunarmannahelgi en ég hef nefnilega oftast verið fyrir norðan. Það er nú í kortunum að eyða þessari helgi líka fyrir norðan því Síldarævintýri á Siglufirði er mjög freistandi að fara á..
Verð að fara gera eitthvað við lubbann á mér. Hann er að stækka og helst lítur maður út eins og úfinn dvergur í Hringadróttinssögu. Spurning um að fara í klippingu??
…
26. júlí 2008
Svo virðist sem að ágúst veðrið sé nú ekki alveg komið til að vera og júlí ekki alveg búin að sleppa af manni takinu því það var nú ansi, ansi heitt í gær! 22 stiga hiti og átti víst að vera heitasti dagur ársins. Þrátt fyrir sólina í dag og mögulegan hita þá er svo hvasst.
Brrr…
23. júlí 2008
Ágústmánuður virðist ætla koma aðeins á undan áætlun því veðrið í Reykjavík um þessar mundir er ekkert til að hoppa húrra fyrir. Hvasst, kalt og lítur út fyrir að það muni rigna hvað úr hverju. Brrrr… manni langar bara undir sæng með hot kókó.
Um leið og góða veðrið fer þá fer maður að hugsa um haustið framundan og veturinn. Skólinn byrjar 1.september hjá mér, einhver skólahugur kominn í mann. Get ekki beðið eftir því að byrja, verð í 35 ein. (17,5 í gamla kerfinu). Tek námskeið eins og Vettvangsverkefni á Þjóðskjalasafninu, Skjalavarsla á 20. og 21.öld og Bretland á 20.öld - sem ég er voða spennt fyrir:)
Ég sem norðlendingur er nú ekki vön að hafa ágúst svona kaldan og blautan eins og hann er venjulega í Reykjavík. Það er alltaf besta veðrið fyrir norðan í ágúst.
Gerði dramatíska ákvörðun á leið frá Akureyri í fyrradag. Keypti mér gleraugnaumgjarðir, lét svo setja gler í þau hér fyrir sunnan. Þetta væri auðvitað ekki frásögu færandi nema að þau eru svolítið öðruvísi en ég hef oftast valið mér í gleraugum. Þau eru stærri og græn og maður tekur eftir þeim. Ég er mjög ánægð með þau - maður verður nú að breyta stundum til - afar hollt að breyta og ekki festast í sama farinu.:) Ætli þau séu ekki aðeins fullorðnislegri - er maður ekki að vera fullorðin?
jæja á þeim nótum þá er best halda áfram að vinna…
p.s. Er að hlusta á fréttir á rás 2 - Berlusconi var að koma í gegn hertum lögum gegn ólöglegum innflytjendum á Ítalíu - hvað verður um Ramses núna??
Hringurinn tekinn á fjórum dögum!
22. júlí 2008
Jæja, þá er maður búin að fara hringinn í kringum landið (mínus Vestfirðir) á litla Kagga. Hann fór þetta auðveldlega og bilaði ekkert, ef maður telur ekki með einhver vafasöm bankhljóð sem komu þegar við keyrðum inn að Geitafelli sem er undir Vatnajökli. Þangað er langur, malavegur með grófum steinum en þangað fórum við barasta hægt og litli Kagginn tók meira segja tvö vöð með léttleika! Mæli eindregið með að fólk keyri þangað inn því þar hefur jökullinn hopað og um allt eru steinar sem eru allskonar á litinn. Mjög fallegir og stálumst við í að taka nokkra með:) - spennandi að sjá hvað maður getur gert við þá:).
Verð að fara setja inn myndir við tækifæri.
best að halda áfram að vinna…
Útilega
17. júlí 2008
4-daga útilega framundan og veðrið á að vera gott!:) Planið er að leggja stað um 6 leytið í dag og keyra að Kirkjubæjarklaustri og gista þar í nótt. Á morgun ætlum við að skoða þar í kring, e.t.v. Systrastapa, Dverghamra, Systrafoss eða Kirkjugólf. Síðan langar okkur að fara inn að Skaftafelli og ganga upp að Svartafossi sem á víst að vera foss með stuðlabergi og mjög fallegur, eflaust göngum við einnig eitthvað um Skaftafell. Fallegt um þar að litast og nóg af gönguleiðum. Við ætlum nefnilega að taka okkur nógann tíma og stoppa oft og keyra hægt:) - förum nefnilega á lillanum mínum - Ford Ka, Ka stendur fyrir KAGGI - hehe..
Síðan er planið að fara á Höfn í Hornafirði og vera þar á laugardeginum og taka þar laugardaginn á Höfn. Verðum klárlega að fá okkur Humarsúpu á Höfn því þar er súpan víst aðalmálið og maður getur meira segja fengið hana í lúgu!!! Bara fyndið að geta fengið humarsúpu í lúgu:). Svo langar manni svoldið að skoða eins mörg söfn og maður finnur:) - það er auðvitað Byggðasafn á Höfn, sem er sjóminja- og náttúrugripasafn að auki! Það er sko nýtt plássið. Alltaf spennandi að fara heimsækja ný söfn, svona þegar áhuginn á söfnum hefur aukist til muna eftir að maður byrjaði að vinna á einu slíku:). Höddi ætlar svo auðvitað að sýna mér allt á Höfn, þar sem hann bjó þar á sínum yngri árum - og ætlar að sýna mér alla staðina sína frá því hann var lítill polli:).
Svo er komutími í borgina aftur einhverntímann á mánudaginn. Þetta verður ofsagaman, sérstaklega að fara á litla, taka litla tjaldið með - ætlum að reyna vera “practical” um helgina og ekkert að vera taka of stórt tjald eða of stórann bíl. Hehe, vona bara að minn bíll verði ekki of lítill:):).. hehe..





