Ættarmót..

29. júní 2008

Ættarmót eru alltaf mjög skemmtileg í minni fjölskyldu, sama hvoru megin ættarinar. Alltaf gaman að koma saman, í góðra vina fund. Fór á eitt stykki ættarmót um helgina, en það var haldið fyrir norðan í Fnjóskadal. Þar voru mættir 125 afkomendur (og fylgjur). Afkomendur þeirra Kristjáns og Guðrúnar, langaafa og langaömmu í Nesi.

Veðrið var manni alls ekki hagstætt, þar sem veðurguðirnir slengdu á mótið mikilli rigningu og kulda (enda snjóaði á fjallstoppum!!). Veðrið stoppaði fólk þó ekki í að skemmta sér vel að hittast og hafa gaman af. Ýmislegt var gert til afþreyjingar - farið í heimsókn í kirkjugarðinn á Hálsi og heimsótt leiði langaafa, langaömmu, langalangaafa, langalangaömmu og ættingja sem horfnir eru á braut.  Það var svo farinn túr upp í dal og skoðað vel heppnaða ræktun í gegnum árin. Síðan var gengið upp og niður lækinn og skoðuð stóru “fiskiskálina” hans afa og annað. 

Eftir það var farið í myndaratleik - þar sem átti að taka myndir af hugtökum og margt skemmtilegt kom út úr þeim leik. Um kvöldið var síðan grillað, sungið og trallað af mikilli innlifun langt fram á nótt.

Mér fannst mest áhugavert að sjá gamlar myndir af lífinu í Nesi þegar Kristján langaafi og Guðrún langaamma voru enn á lífi og aðrar gamlar myndir. Þó fannst mér alveg vanta í ættarmótið að fólk kynnti sig og fjölskyldu sína, það var þó svo gríðarlega mikið af fólki svo það hefði tekið svo langan tíma. Ákveðið var að halda næsta ættarmót að fjórum árum liðnum. Of langt að mínu mati.

Þakka fyrir frábært ættarmót - alltaf gaman að koma saman!:):)

Ég ætla að líða hægt til Reykjavíkur á morgun. Vonandi fer veðrið batnandi. Það er svo hrikalega kalt hérna  -  maður verður eiginlega að taka fram dúnúlpu!!!

kveðjur..

Óðinn

26. júní 2008

Óðinn að koma til bryggju

Óðinn - að koma til bryggju í fyrsta skipti 28.janúar.1960

Legg af stað norður um 6 leytið í dag.

Voff, voff… urr..

25. júní 2008

Hmm.. elska ættarmót. Ekkert skemmtilegra:) - eitt svoleiðis um helgina:) í Fnjóskadal. Vonum bara að það verði gott veður. Keyri á Fordinum á morgun eftir vinnu, svo maður verður eitthvað seint á ferðinni.

Er að horfa á David Attenborough, Life of mammals, sem ég tók á bókasafninu. Algjör snilld þessi þættir og Sir David Attenborough er með þessa snilldarrödd sem er þægilegt að hlusta á - svo eru þessir þættir að auki, mjög skemmtilegir og fræðandi.

Núna, er þáttur sem fjallar um dýr sem borða eiginlega bara allt. Hann sýndi núna áðan, sæta litla hvolpa þvottabjarnar - sem voru að læra að veiða. Fengu egg í hendurnar og vissu ekkert hvað skyldi gera við eitt slíkt… hehe.. bara sætt! Birnir eru einnig það sem kallast omnivores á ensku - borða allt. Rætur, gras, hræ, kjöt og auðvitað lax. Þeir eru með gífurlega gott lyktarskyn og þegar laxinn fer þá fer hann í að borða ber og skeljar. Og svo allt annað sem þeir finna.
Bara júní og mig er farið að langa í skólann aftur. Ekki eðlileg. Best að hrista þetta af sér. *Shake Shake Shake* - alveg farið, enda útileiga framundan næstu tvær helgar. Fyrst er ættarmótið, svo er einhverjar hugmyndir um að fara í útileigu - kannski í Þórsmörk:) - aldrei komið þangað, löngu komin tími til.

kv.Alma

www.sjominjasafn.is

24. júní 2008

  Var að velta fyrir mér leiðum til að auka vinsældir safnsins. Gestasóknin á s..afnið hefur verið ágætt en mér finnst að hún mætti vera betri. Þess vegna var ég byrjuð að upphugsa leiðir sem gætu komið safninu að góðu, aukið sóknina og umtal.  Auðvitað datt manni fyrst í hug auglýsingar af ýmsu tagi. Ljósvakamiðlar, dagblöð - útvarp og slíkt. En svo fór ég að hugsa. Slíkar auglýsingar er svo venjulegt - við þyrftum að gera eitthvað verulega sjokkerandi til að laða að fólk! Svo mér datt í hug hvort við þurftum bara ekki að kaupa einhverja flotta búninga á starfsfólkið!!

Það myndi örugglega auka auka vinsældir safnsins, held ég.

Sólisólsóli

23. júní 2008

Frábær helgi liðinn - önnur eins á hraðleið:). Eyddi helginni fyrir norðan með fjölskyldunni. Mætti í eitt stykki fimmtugsafmæli - frábær félagskapur og frábær matur að venju.  Næsta helgi verður tekið eitt ættarmót í Fnjóskadal.

Frí í dag eins og venjulega - notaði tækifærið og tók hjólið út og fór í sund. Bara frábært að liggja í heita pottinum í Laugardalslaug og sleikja sólina:). Svo fer maður auðvitað í vinnuna á morgun - vilja ekki einhverjir nota gott veður á morgun og koma í heimsókn:)?

kv.Alma

Þrítugur..

20. júní 2008

Garfield 30, 19.jún.2008

Garfield var þrítugur í gær, 19.júní.2008. Til hamingju með afmælið:) Snilldar myndasaga, snilldar köttur. Það lyftir manni upp að lesa eina Garfield myndasögubók!:):)

Fríhelgi framundan, sem verður eydd fyrir norðan:).