Norður
29. febrúar 2008
Erum að fara norður þessa fallegu marshelgi. Leigjum íbúð á Akureyri ásamt þremur vinum Hödda, þeim Palla, Hafsteini og Sigfinni. Einnig stefnum við í mat í Brekkutröð 6 annað kvöld og síðan í leikhús með strákunum á Fló á skinni. Hlakka mikið til að sjá það - enda hefur það fengið mikið lof gagnrýnenda. Hörður og strákarnir ætla síðan að fara á skíði uppí Hlíðarfjalli. Sjálf legg ég ekki í skíðin, hef lagt skíðin mín á hilluna (yrði eins og belja á svelli!) - og ætla eyða tímanum í faðm fjölskyldunnar. Get ekki beðið að koma í mína heimasveit og hitta liðið! Alltaf gott að komast heim!
Við Höddi leggjum af stað innan stundar. Fyrr en áætlað var - sem betur fer! Sól og blíða úti og er ég mjög glöð að það sé ekki brjálað veður. Manni líður alltaf betur ef ferðast er í góðu veðri - enda auðveldara að ferðast þannig. Vona að það verði gott veður á leiðinni.
Áætla að við leggjum af stað milli 4 og 5 og verðum komin til Akureyrar á milli 11 og 12 í kvöld.
Kveðjur
Alma Sigrún
Flug vs bifreið
27. febrúar 2008
Að ferðast yfir landið tekur oft á eins og sést í nýlegri auglýsingu Flugfélag Ísland - þar sem maður sem er á leiðinni til Akureyrar en lendir í hrakningum á leiðinni og kemur skítugur, þreyttur og illa lyktandi á leiðarenda með ansi drullugan bíll sem bilaði á leiðinni - auglýsingin leiðir fólk inn á rangar brautir um hvað er að keyra um landið.
Ég sem eyjafjarðarmær, ferðast oft norður (þó ekki nógu oft) og keyri jafnan. Auglýsing flugfélagsins gerir út á það að sýna fólki að ferðin norður á Akureyri frá suðurlandinu taki alveg rosalega á - sé hræðileg, subbuleg og þegar sé komið á leiðarenda sé bíllinn ógeðslega skítugur og maður sjálfur lykti eins og drullugur sokkur. Sem ég verð að segja sé nú ansi fjarri sannleikanum.
Ef ég á að velja - vel ég hiklaust bifreiðina góðu sérstaklega þegar fleiri eru í för:) maður ræður tímanum, getur tekið með sér einhverja, heimatilbúna yndislega samloku og hlustað á sína eigin tónlist og sungið með án þess að skammast sín! Að keyra er hluti af ferðinni - skoða landið og stoppa jafnvel á leiðinni og njóta nátturunnar.
Ástæðan fyrir þessum bloggskrifum er sú staðreynd að við Hörður förum heim næstu helgi í skíði og heim í faðm fjölskyldunnar. Hlakka mikið til
Hvað finnst ykkur? Flug eða bifreið?
Forsetakosningar í BNA
26. febrúar 2008
Eins og flestir eiga að vita eru forsetakosningar í Bandaríkjunum næsta vetur en kosningabaráttan er harðari á hverjum degi. Nú þegar eru þó 8 mánuðir í sjálfar kosningar er orðið ljóst að Barack Obama og Hillary Clinton berjist um forsetatilnefningu Demókrata og John McCain fyrir tilnefningu Repúblikana.
Aldrei hefur það gerst áður að svartur maður af afrískum uppruna og kona séu að leitast eftir því að verða næsti forseti BNA. Eitthvað sem ég tel vera virkilega góða þróun í BNA sérstaklega eftir forsetatíð George W. Bush. Af síðastliðnum þremur forsetum var nú William J. Clinton, 42. forseti BNA - 1993-2001, sá besti af þeim. Enda stendur hann við hlið konu sinnar til 33 ára, Hillary Clinton, í hennar kosningarbaráttu.
Spurningin er þó hvort yrði betri forseti. Allt bendir til þess að Obama hafi vinninginn í vera forsetaefni Demókrata. Hann hefur sigrað í forkosningum í fleiri ríkjum, eða alls 26 en Hillary í aðeins 11. Hún virðist þó sækja á hann nýlega.
Forsetakosningarnar í BNA æsast alltaf og breytast í grimma baráttu forsetaefnana í formi auglýsinga þar sem önnur forsetaefni eru iðulega dregin niður í svaðið útaf fyrri mistökum sem oft á stundum eru upplogin. Nýjasta viðbóltin við það er frétt sem birtist nýlega af Obama í þjóðbúningi ættbálks síns í Kenýa í Afríku. Um allt internetið birtust ásakanir fólks á hann um að hann sé múslimi - sem verður að segjast sé viðkvæmt umræðuefni í BNA. Í herbúðum Obama hefur fólk brugðist illa við þessum ásökunum því Obama segist sjálfur vera í kristnum söfnuði. Kosningabaráttan í BNA hefur því farið á lægra plan en maður sá í upphafi þar sem þau Hillary voru afskaplega góðir vinir en þar sem líður á árið er gripið til ýmissa bragða.
Góðann dag, gott kvöld og góða nótt
Heimild:
,,Kona - drottning í ríki sínu”
25. febrúar 2008
Konur hafa frá upphafi tímans talin vera mun lægra sett en karlmaðurinn og hefur það verið fastmótað í hugum karlmanna og oft í hugum kvenna. Árið 1881 breyttist kosningarréttur kvenna á Íslandi og búandi ekkjur fengu kosningarétt til sveitastjórna en ekki kjörgengi, 1907 fá konur jafnan kosningarétt og kjörgengi á við karla í Reykjavík. Síðan beitti Bríet Bjarnhéðinssdóttir, sú kjarnakona, að konur fengi að ganga í embætti sem þær fengu 1911 - sem vakti miklar umræður meðal þingmanna. Jón Jónsson frá Hvanná sagði í Alþingistíðindum 1911 að karlmenn séu mun færari að vera í opinberum störfum en konur. Hlutverk kvenna sé á heimilinu og að gæta barna sinna.
Merkilegt hvað þetta var algeng hugsun meðal karla þrátt sé komin 20.öld og framfarir séu víða og jafnréttishugsunin farin að gæta hjá mörgum. Hann segir einnig að ,,það væri afkáranlegt, að konan væri á sífeldu flakki og ferðalagi” - greyjið bóndin þyrfti að vera heima og passa sín eigin börn - en þegar maður les slíkar greinar sem skrifuðu voru á árunum eftir aldamótin 1900 þá verður að gæta þess að passa sinn 21.aldar jafnréttishugsunnarhátt. Hinsvegnar þegar maður reynir að stemma við sinn nútímahugsunarhátt þá er það sem Jón skrifaði mjög fyndið - að það væri fáranlegt að kona væri á einhverju flakki - fyndið, fyndið. Einnig er afar skondið sem Jón Þorkelsson sagði á þingi 1911 ,, Konan hefir það takmark að stjórna heimilinu, það er raunar takmarkað ríki, en þar er hún drottning og ríkið er voldugt, þótt takmarkað sé, og mikið undir því komið, að því sé vel stjórnað..” Ef ríki kvenna fram að aldamótum 1900 og jafnvel fram að 1950 væri á heimilinu hvað er ríki kvenna í dag? Húsmóðir eru allar komur sem eiga sér heimili að stjórna. Amma mín, Alda frá Kjós í Árneshreppi á Ströndum - gift 1955, er húsmóðir í Fnjóskadal og sem og amma mín Brynhildur frá Geirmundarstöðum á Skarðströnd - giftist 1953, húsmóðir í Eyjafjarðarsveit. Munur á þeim og mömmu minni til dæmis að þær voru og eru allt sitt líf húsmæður á bændaheimilum og störfuðu ekki við annað - svo ég viti. Um 1950-1960/70 breyttist þetta - konur urðu bæði húsmæður og með aðra atvinnu - því að vera húsmóðir með börn er nú bara fullt starf, og að vera húsmóðir, með börn og annað starf er afskaplega merkilegt.
Þegar er rýnt í orðin húsmóðir - myndarleg, röggsöm og orðið húsbóndi er víst strax sýnilegur munur - hús móðir og hús bóndi ekki húsfaðir. ,,að vera húsbóndi á sínu heimili” - ,,betra er að vera húsbóndi í helvíti en þræll á himnum” segir einhversstaðar. Í denn var merking orðsins slík - húsbóndi á sínu eigin heimili - yfir öllum þeim sem kunna að hafa átt þar einnig heimili. Í dag er merkingin hinsvegar önnur og nær oftast yfir bæði kynin - ,,að vera sinn eigin húsbóndi” - en orðið ,,húsbóndastóllinn” vísar hinsvegar í gömlu merkinguna á orðinu.
Ástæða fyrir þessum kvenréttindarskrifum mínum er sú að ég fór í fyrirlestur sem að hluta til fór yfir þegar konur fengu kosningaréttindi og þar benti kennarinn okkur á þessi skrif Jóns frá Hvanná og orð Jóns Þorkelsonar á þingi 1911. Fannst þetta einkar merkilegt sérstaklega orð hins síðarnefnda - að konan væri drottning í ríki sínu - heimilinu.
Að konur séu ríkjandi á heimilum sínum er alls ekki algild í íslensku samfélagi á 21.öldinni. Þrátt fyrir að það mætti segja að ég væri nú húsmóðir á mínu eigin heimili þekki ég stelpu sem vill alls ekki komast neitt nálægt eldhúsinu og sér maðurinn hennar um þau mál - sem er algengt í dag, 2008. Það kemur kannski uppeldinu við en það hlýtur að vera ein af ástæðunum auk áhrifa samfélagsins. Líf manna nú er svo mun auðveldara en áður fyrr og þægindi og tækni gera manni mun auðveldara fyrir.
oj..
24. febrúar 2008
party í gær - þynnka í dag
…
föstudagur..
22. febrúar 2008
mmm.. frí frá lærdómi í dag…það er yndislegt!!! Er búin að tölvast uppá hlöðu í ritgerð undanfarna 4 daga frá 9-4 - og var orðin býsna búin á því kl.4 í gær.. shit. Maður má ekki gleyma sér í þessu..
Mamma og Pabbi eru að koma í dag og gista að öllum líkindum heima hjá okkur - enda nýji sófinn víst svefnsófi .. eða við ætlum allavega að reyna breyta honum í svefnsófa - gamall sófi og þetta er eitthvað snúið held ég.. hehe..
Bróðir minn kom ekki með í þetta skipti - svo það er bara gamla settið.
Við förum norður næstu helgi í skíðaferð - eða strákarnir ætla á skíði - ég ætla í heimsóknir - hehe.. svo förum við í leikhús..
það á víst að vera vísindaferð í kvöld en ég verð víst að sleppa henni - þegar maður fær gesti þá er best að vera heima hjá sér..hehe.. svo ætlum við mamma að sjóða saman eitt stykki pítsu í matinn..
jæja… nóg í bili..





