Britney send á geðdeild og svipt sjálfræði!
31. janúar 2008

Það hefur dregið til tídinda í Britney Spears málum. Lögregla og sjúkralið voru kallaðir að heimili hennar í norðurhluta Hollywood í morgun. Hún var síðan send á sjúkrahús, og lögð inná geðdeild þar sem hún var svipt sjálfræði en það gæti bent til þess að hún hafi reynt að fremja sjálfsmorð. Þar geta þeir síðan haldið henni í 72 klukkustundir en læknir getur beðið um að halda henni í 14 daga í viðbót.
Hún var send nýlega nauðug á sjúkrahús þar sem hún gekk undir geðrannsókn en umboðsmaður hennar segjir að hún eigi við geðræn vandamál að stríða en Britney reifst víst við umboðsmanninn eftir það. Foreldrar hennar fluttu inn eftir það.
Ég segji nú bara, Greyjið Britney.
Annars er allt gott að frétta. Er uppá hlöðu að lesa. Er hinsvegar ekki byrjuð. Verð að fara drífa mig í þessu.
kv.Alma
Þið vitið ekki hvað ég er fegin að Tenika var kosin út úr Canada’s next top model en ekki Ylenia. Það bjargaði deginum.
Miðvikudagur
30. janúar 2008
Netið er svona æðislega hægt í Árnagarði í dag. Var rétt að komast inná síðuna mína eftir 3 tilraunir.
Það er s.s komið á hreint að við förum í skíðaferð til Akureyrar helgina 29.feb, 1. og 2 mars. Það hefur verið leigt íbúð og farið svo í fjallið. Er að hugsa hvort ég fari með upp í fjall en veit ekki - efa það. Fer líklegast bara heim og heilsa uppá fjölskylduna. Svo verður farið í leikhús laugardagskveldið - man ekki hvaða leikrit í augnalokinu.
Var dugleg í morgun og fór í ræktina og hef verið að lesa síðan. Lestraraðstaða í Árnagarði er hræðileg en ég nennti ekki að fara upp í bókasafn þar sem er svakalega hljótt og dautt.
jæja, nóg í bili
kv.Alma Sigrún
Fagurlega lagaður blár fjaðurpenni
29. janúar 2008
Hann var blár á meðal allra lita veraldar. Hann stóð út. Honum held ég í höndum mér. Hann er blár fjaðurpenni. Sá allra flottasti. Sé fyrir mér Ara fróða, Jón Sigurðsson með fjaðurpenna í hendi. Geng braut forfeðranna með fjaðurpenna í hönd.
Gekk stolt með merki Röskvu í dag. Hef ákveðið mig og hvet aðra til þess. Kosningar í næstu viku Öskudag og fimmtudag.
Hryggur hryggur í ofninum. Hann á að vera í matinn, greyjið. Örlögin gat hann ekki flúið.
Alma
p.s. Tók test á facebook í dag sem sagði mér hinn raunverulega aldur minn. Hann var 6.ára. Ekki skrítið að mér finnst teiknimyndir svona skemmtilegar.
Atlag gert að sönnum sonum þjóðarinnar
28. janúar 2008
Alma skilur ekki umræðuna um Spaugstofuna. Ölmu fannst spaugstofan frábær og strákarnir vera deila á fjölmiðla í þessu gríni sínu. Ölmu fannst Ólína Þ. sem gerði atlag að spaugstofuni í nýliðnu kastljósi sýna lélega kímnigáfu Ólínu og hún sé aðeins að reyna að trana sér fram í þjóðfélaginu með því að sýnast vera að verja mannorð vissra einstaklinga. Spaugstofan er sú stofnun í samfélagi íslendinga sem gerir ádeilu á ýmsa atburði í þjóðfélaginu og haldir lífi okkar skemmtilegu með gríni á hverju laugardagskvöldi sem yrði annars hræðilegt aðeins með hinn hræðilega ófyndna þátt sem Laugardagslögin eru.
Alma vill einnig koma á framfæri að hún styður Röskvu í stúdentakosningum í ár og finnst rétt að fleiri myndi sér skoðun og sé ekki hræddir að segja hvað þeim finnst og hvað þeir kjósi. Alma ætlar að ganga með merki Rösku næstu daga, stolt af því hvað henni finnst.
Megi þið ganga inn í næsta dag með opnum hug og með kímnigáfuna í lagi.
Ullarsokkar og bíó
28. janúar 2008
Nýr dagur og ný vika - helgin leið frá tíðindalaus. Fór í vísindaferð á föstudag sem var skemmtileg, eða þar að segja, við fórum öll uppá Dillon og það var skemmtilegt en hinsvegar vísindaferðin sjálf var ekki skemmtileg, stutt og fengum bara eina bjór tegund að drekka. Allt það var í boði Ölgerðarinnar en fyrir áramót fórum við upp í Vífilfell sem var mun skemmtilegra og fengum fleiri tegundir og snakk og horfðum á gamlar kók auglýsingar.
Kláraði loks ullarsokkanna mína. Þeir liggja nú mjög þægilega á fótunum á mér og þykir skemmtilegt.
Bíó í Nýja Garði í dag kl.15.00 - Á vegum Íslandssögu e.1815. Erum að fara horfa á stríðsárin og ástandið. Mjög spennandi og verður örugglega skemmtilegt.
kv.Alma





