From the west side of town..
25. ágúst kl. 14.28
Flutningar eru afskaplega mikið vesen, ef satt skal segja. Auðvitað er hægt að líta á allt saman með jákvæðu hugarfar og segja við sjálfa sig að næsta íbúð eða hús sé betri en hitt, kannski ódýrara, betri staðsetning og þar fram eftir götunum. Í sannleika sagt, eru flutningar næstum alltaf óttalegir vandræðagemsar.
Fyrst þarf að útvega sér kassa. Sortera hluti hvort sem það fer í geymslu, upp á veggi, inní eldhús, í sorpið o.s.frv. Hefst þá pökkun. Kassar út um allt. Varla hægt að komast inn í svefnherbergi eða eldhús fyrir kössum og drasli. Svona í u.þ.b. viku. Svo þegar líður að eiginlegum flutningum, byrjar stressið. Koma öllu í kassa, fara með drasl í Sorpu, hafa áhyggjur af hvort maður fær lánaðan sendiferðabíl og grátbiðja vini og fjölskyldu um hjálp. Svo ég tali nú ekki um að vera búin að þrífa nýju íbúðina - því let’s face it. Sama hvað hún er greinilega hrein, þá fer maður alltaf yfir hana að einhverju leyti.
Á sjálfann flutningadaginn líður manni betur, því þá sér maður að allt fer vel. Fólk og bílar mættir. Allt fer í kassa og út úr húsi. Heppnir þeir sem búa á jarðhæð! Þó verð ég að segja að það er mjög góð líkamsrækt að flytja af þriðju hæð yfir á þriðju hæð.
Þeir sterku redda húsgögnum. Allt reddast.
Hinsvegar bullar í manni skömm þegar gamla íbúðin er tóm og þegar allir sjá hvað er skítugt. Úff, best að muna að gera almennilega jólahreingerningu. Best að drífa alla út áður en allir sjá allann skítinn…
Nýja íbúðin - nú full af kössum. Allt í óreglu.
Fyrsta nóttin yndisleg. Vissa um að allt fari vel…
köttur út í mýri…….
——–
Yndislegt að vera komin í nýja íbúð. Flest allt hjá okkur komið upp úr kassa - og við sofum mjög vel í vesturbænum. Tekur mig núna fimm mínutur að hjóla í vinnuna. Og við höfum FRÁBÆRT útsýni yfir hafið, út á Akranes og Akrafjallið.
Útvarpssagan
10. ágúst kl. 18.47
Útvarpssagan er gamalgróinn dagskrárliður á Rás 1. Hann hefur verið á dagskrá síðan árið 1936.
http://dagskra.ruv.is/utvarpssagan/greinar/utvarpssagan_gamalgroinn_dagskrarlidur_5097/
Miðvikudaginn þann 4 ágúst, kl.15.03, hófst lestur á bók Vilborgar Davíðsdóttur Eldfórnin. Höfundur les sjálfur. Ef farið er í gegnum forsíðu RÚV-Rás 1-Útvarpssagan neðst vinstra megin.
http://dagskra.ruv.is/ras1/4544642/2010/08/04/
Afskaplega þægilegt að hlusta á þetta seinni parts dags.
Vesturbæjarinn
5. ágúst kl. 13.44
Fædd og uppalin í Eyjafirði. Mun alltaf líta á mig sem Eyfirðing - Norðlending og sveitastúlku af húði og hári. Hugsunin um að flytja í vesturbæ Reykjavíkur er samt rosalega aðlaðandi. Sveitastúlkan er að flytja í aðlaðandi íbúð niður í sjó, þar sem er frábært útsýni yfir sjóinn og stuttur gangur í bæði skóla og vinnu.
Við sjóinn eru síðan indælis göngustígar, stutt í vesturbæjarsundlaug ásamt lágvöruverðsverslunum við Grandann og miðbæjinn.
Varðskipið Óðinn - The Coast Guard Vessel Óðinn
3. ágúst kl. 21.56
Varðskipið Óðinn er án efa stærsti safngripur Sjóminjasafnsins í Reykjavík. Hann liggur við safnbryggju safnsins ásamt gamla dráttarbátnum Magna sem er verið að gera upp svo hægt sé að sýna hann gestum og gangandi líkt og Óðinn. Á tveimur hæðum Sjóminjasafnsins er hægt að kynna sér sögu ,,fiskveiða og strandmenningu Íslendinga í aldanna rás. Hlutverk safnsins er að safna og miðla upplýsingum um minjar tengdar sjó og sjómennsku, einkum þeim sem gildi hafa fyrir sögu Reykjavíkur. Nú eru tveir aðalinngangar inn í safnið, Grandagarðsmegin og síðan hafnarmegin.”
(Heimild: www.sjominjasafn.is/syningar/)
Varðskipið Óðinn og dráttarbáturinn Magni við safnbryggjuna:
Á góðvirðisdögum má sjá endur á pollinum og fiska leika sér að stökkva í vatninu. Oft er mikið líf niður við höfn.
Gamla Gullborgin stendur einnig við safnið, bátur aflaklóarinnar Binna úr Gröf.
Skipið er á vegum Faxaflóahafna. Eiginlega þyrfti fara henda einhverja málningu á hann!
Sjóminjasafnið er opið alla daga í sumar milli 11 og 17. Varðskipið er opið gestum safnsins milli 12:30 og 16:30. Um helgar koma fyrrum áhafnameðlimir í heimsókn og geta áhugasamir því fengið einkaleiðsögn um skipið. Bryggjan Kaffihús býður síðan uppá indælis bökur, kökur, súpur og smurt brauð. Einnig er hægt að kaupa íslenska framleiðslu í safnbúðinni.
The Maritime museum is open every day this summer from 11 am to 17 pm. The Coast Guard vessel Óðinn is open to museum guests from 12:30 to 16:30. Former members of the Óðinn crew offers guests a privat tour on weekends. In the Café you can buy pies, cakes, soups and bread. Also one can buy icelandic made product at the museum shop.
(Á þessum síðustu og verstu, verður safnvörðurinn að nýta alla auglýsingamiðla;)
kveðjur, Alma Sigrún safnvörður á Sjóminjasafninu
When I’m gone
2. ágúst kl. 21.17

When I’m gone
“And when I’m gone, just carry on, don’t mourn
Rejoice every time you hear the sound of my voice
Just know that I’m looking down on you smiling
And I didn’t feel a thing, So baby don’t feel my pain
Just smile back
And when I’m gone, just carry on, don’t mourn
Rejoice every time you hear the sound of my voice
Just know that I’m looking down on you smiling
And I didn’t feel a thing, So baby don’t feel no pain
Just smile back…”
Eminem
Við höfnina
1. ágúst kl. 17.32
Þegar vinnustaðurinn er við höfnina hlýtur það að hafa einhverjar afleiðingar. Hef myndavélina jafnan í veskinu þessa dagana til að fanga söguna.
Meerkatze liggur í Reykjavíkurhöfn um helgina og tekur vistir. Á þriðjudaginn leggja þeir út fyrir 200 mílurnar við eftirlitsstörf. Í dag, sunnudag, var leyfilegt að koma um borð og kíkja á gripinn.
Íslenski fáninn blakti við húnn á Þýska skipinu.
Nokkuð mannlíf var við Reykjavíkurhöfn þennan skýjaða en heita fyrsta dag ágústmánaðar. Margir gerðu sér leið niður á höfn til að líta á þýska skipið.
Nokkuð flott hjá þeim þýsku, enda er skipið aðeins 1 og hálfs árs.
Út frá dekki skipsins var nokkuð gott útsýni út á Tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpuna.
“Snekkja” Paul Allens, sem liggur nú við Reykjavíkurhöfn og vekur nokkra athygli vegna stærðar, tveggja þyrla, kafbáta og augljós ríkidæmis.
Árið 2014 verður slippurinn við Reykjavíkurhöfn 100 ára gamall. Þrátt fyrir þennan merka áfanga er kominn tími til að slippurinn hverfi enda of nálægt bílaumferð. Þegar slipppurinn fer þá væri hægt að opna bryggjusvæðið við grænu verðbúðirnar þar sem ferðaþjónusta lifir góðu lífi, og tengja þannig svæðið við Sjóminjasafnið en fyrsti áfangi af þeirri vinnu þegar kominn, með glæsilegri bryggju, sjómegin Sjóminjasafnsins. Þrátt fyrir að slippurinn myndi hverfa, þá væri hægt að gera einhversskonar minnismerki um slippinn, og þess vegna halda einhverjum vegsummerkjum og leyfa fólki að upplifa söguna. Þá væri hægt að tengja bryggju Sjóminjasafnsins við næstu bryggju með bryggjulegum göngustíg við sjóinn. Þetta svæði hefur verið of lokað hingað til og komin tími til að opna svæðið mannlífi enn á ný.





